„Nýtt líf“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 3: | Lína 3: | ||
Myndin fjallar um tvo vini, Þór og Danna, sem ákveða að hefja nýtt líf í Vestmannaeyjum og ráða sig til starfa við fiskvinnslu á fölskum forsendum, en lenda í mörgum skemmtilegum uppákomum og kynnast mjög athyglisverðum persónum á meðan á dvöl þeirra í Eyjum stendur. Eru margar persónurnar löngu orðnar þjóðþekktar og kannast lang flestir við Víglund verkstjóra, ungfrú Snæfells- og Hnappadalssýslu, Maríu Lundadóttur og skipstjórann hjátrúarfulla. | Myndin fjallar um tvo vini, Þór og Danna, sem ákveða að hefja nýtt líf í Vestmannaeyjum og ráða sig til starfa við fiskvinnslu á fölskum forsendum, en lenda í mörgum skemmtilegum uppákomum og kynnast mjög athyglisverðum persónum á meðan á dvöl þeirra í Eyjum stendur. Eru margar persónurnar löngu orðnar þjóðþekktar og kannast lang flestir við Víglund verkstjóra, ungfrú Snæfells- og Hnappadalssýslu, Maríu Lundadóttur og skipstjórann hjátrúarfulla. | ||
[[Flokkur: | [[Flokkur:Kvikmyndir og sjónvarp]] |
Útgáfa síðunnar 18. júní 2007 kl. 09:14
Kvikmyndin "Nýtt líf" er fyrsta myndin af þriggja mynda seríu sem Þráinn Bertelsson skrifar og leikstýrir. Myndin var gerð 1983 og hefur hún verið sýnd í Ríkissjónvarpinu og einnig hefur hún verið gefin út á DVD. Með aðalhlutverk fara Eggert Þorleifsson og Karl Ágúst Úlfsson, en einnig koma fram m.a. Elva Ósk Ólafsdóttir, Sveinn Tómasson og Eiríkur Sigurgeirsson. Tónlistarflutningur Bjarkar Guðmundsdóttur á er ógleymanlegur í myndinni.
Myndin fjallar um tvo vini, Þór og Danna, sem ákveða að hefja nýtt líf í Vestmannaeyjum og ráða sig til starfa við fiskvinnslu á fölskum forsendum, en lenda í mörgum skemmtilegum uppákomum og kynnast mjög athyglisverðum persónum á meðan á dvöl þeirra í Eyjum stendur. Eru margar persónurnar löngu orðnar þjóðþekktar og kannast lang flestir við Víglund verkstjóra, ungfrú Snæfells- og Hnappadalssýslu, Maríu Lundadóttur og skipstjórann hjátrúarfulla.