„Sigurþór Hersir Guðmundsson“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Sigurþór Hersir Guðmundsson''' sjómaður, matreiðslumaður, bryti fæddist 28. júlí 1914 í Reykjavík og lést 5. júní 1988.<br> Foreldrar hans voru Guðmundur Júlíus H...) |
m (Verndaði „Sigurþór Hersir Guðmundsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 2. október 2019 kl. 17:08
Sigurþór Hersir Guðmundsson sjómaður, matreiðslumaður, bryti fæddist 28. júlí 1914 í Reykjavík og lést 5. júní 1988.
Foreldrar hans voru Guðmundur Júlíus Hersir Brynjólfsson bakarameistari, f. 19. júlí 1894, d. 6. júlí 1971, og barnsmóðir hans Margrét Sigurþórsdóttir, síðar húsfreyja á Garðstöðum, f. 2. febrúar 1892, d. 16. júlí 1962.
Sigurþór var tökubarn á Moshvoli í Hvolhreppi 1920, fluttist úr Rangárvallasýslu til móður sinnar á Garðstöðum 1928.
Hann var þar verkamaður og sjómaður.
Sigurþór fluttist til Reykjavíkur, var matsveinn og síðan bryti á strandferðaskipum.
Guðlaug var þerna í strandferðum og þau giftu sig 1951, eignuðust eitt barn og bjuggu í Reykjavík.
Sigurþór lést 1988 og Guðlaug 2008.
I. Kona Sigurþórs, (1951), var Guðlaug Pálsdóttir húsfreyja, skipsþerna, f. 18. apríl 1920 í Fagurhlíð í Landbroti, V-Skaft., d. 23. apríl 2008. Foreldrar hennar voru Páll Guðbrandsson bóndi í Fagurhlíð og Hæðargarði í Landbroti, síðast í Ósgerði í Ölfusi, f. 11. apríl 1887 á Hraunbóli á Brunasandi, V-Skaft., d. 4. október 1964 í Reykjavík, og kona hans Gyðríður Einarsdóttir húsfreyja, f. 29. maí 1894 á Kársstöðum í Landbroti, d. 27. september 1962 í Ósgerði í Ölfusi.
Barn þeirra:
1. Gylfi Páll Hersir jarðeðlisfræðingur, kennari, f. 7. nóvember 1951.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Morgunblaðið 6. maí 2008. Minning Guðlaugar.
- Prestþjónustubækur.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.