„Arndís María Kjartansdóttir“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Arndís María Kjartansdóttir''' frá Múla, húsfreyja, framhaldsskólakennari, fasteignasali fæddist 3. júlí 1971.<br> Foreldrar hennar voru Kjartan Þór Bergste...) |
m (Verndaði „Arndís María Kjartansdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 26. ágúst 2019 kl. 17:09
Arndís María Kjartansdóttir frá Múla, húsfreyja, framhaldsskólakennari, fasteignasali fæddist 3. júlí 1971.
Foreldrar hennar voru Kjartan Þór Bergsteinsson loftskeytamaður, f. 15. september 1938 á Múla, og síðari kona hans Arndís Egilsson húsfreyja, f. 3. apríl 1942 í Reykjavík, d. 14. júní 2005.
Arndís var með foreldrum sínum í æsku, lauk stúdentsprófi í Eyjum, nam kennslu við Háskóla Íslands og lauk B.Ed. prófi 2004. Einnig nam hún þýsku og ensku.
Hún er löggiltur fasteigna- fyrirtækja- og skipasali.
Arndís hefur kennt við Framhaldsskólann í Eyjum frá 1997.
Þau Ómar giftu sig 2002, hafa eignast þrjú börn. Þau búa á Smáragötu 7.
Maður Arndísar, (17. júní 2002), er Engilbert Ómar Steinsson stýrimaður, hótelrekandi, umboðsmaður, f. 3. desember 1965.
Börn þeirra eru:
1. Breki Ómarsson, f. 10. ágúst 1998.
2. Bríet Ómarsdóttir, f. 19. mars 2002.
3. Berta Ómarsdóttir, f. 3. febrúar 2006.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Arndís María.
- Íslendingabók.is.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.