„Vigfús Sigurðsson (Pétursborg)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
[[Mynd: | [[Mynd:Vigfús_og_fjölskylda.jpg|thumb|250px|Vigfús Sigurðsson ásamt Jónu konu sinni og dætrum.]] | ||
Vigfús Sigurðsson, [[Pétursborg]], fæddist 24. júlí 1893. Árið 1908 fluttist Vigfús til Vestmannaeyja með foreldrum sínum, [[Sigurður Vigfússon|Sigurði Vigfússyni]] og [[Ingibjörg Björnsdóttir|Ingibjörgu Björnsdóttur]]. Bjó hann í [[Pétursborg]] með fjölskyldu sinni. Hann kvæntist Jónu Guðríði Vilhjálmsdóttur. Þau bjuggu að [[Bakkastígur|Bakkastíg]] 3 og áttu tvær dætur, Ástu og Láru. Húsið sem þau bjuggu í á Bakkastíg var kallað [[Fúshús]], eftir Vigfúsi. | Vigfús Sigurðsson, [[Pétursborg]], fæddist 24. júlí 1893. Árið 1908 fluttist Vigfús til Vestmannaeyja með foreldrum sínum, [[Sigurður Vigfússon|Sigurði Vigfússyni]] og [[Ingibjörg Björnsdóttir|Ingibjörgu Björnsdóttur]]. Bjó hann í [[Pétursborg]] með fjölskyldu sinni. Hann kvæntist Jónu Guðríði Vilhjálmsdóttur. Þau bjuggu að [[Bakkastígur|Bakkastíg]] 3 og áttu tvær dætur, Ástu og Láru. Húsið sem þau bjuggu í á Bakkastíg var kallað [[Fúshús]], eftir Vigfúsi. |
Útgáfa síðunnar 5. júlí 2006 kl. 13:41
Vigfús Sigurðsson, Pétursborg, fæddist 24. júlí 1893. Árið 1908 fluttist Vigfús til Vestmannaeyja með foreldrum sínum, Sigurði Vigfússyni og Ingibjörgu Björnsdóttur. Bjó hann í Pétursborg með fjölskyldu sinni. Hann kvæntist Jónu Guðríði Vilhjálmsdóttur. Þau bjuggu að Bakkastíg 3 og áttu tvær dætur, Ástu og Láru. Húsið sem þau bjuggu í á Bakkastíg var kallað Fúshús, eftir Vigfúsi.
Vigfús byrjaði ungur sjómennsku og árið 1920 hóf hann formennsku á Blíð. Eftir það er hann með Gústaf, Kap og fleiri báta fram yfir 1930. Eftir það hætti Vigfús formennsku og stundaði útgerð í nokkur ár.
Áhöfn Vigfúsar á vélbátnum Gunnari Hámundarsyni var hætt komin þann 9. janúar 1926 nærri Stokkseyri, í atburði sem er kallaður Stokkseyrarveðrið 9. janúar 1926. Þar voru sextíu menn á tveimur bátum sem komust lífs af eftir miklar hrakningar.
Heimildir
- Guðmundur Vigfússon. Stokkseyrarveðrið 9. janúar 1926. Sjómannadagsblaðið 1982. 31. árg.
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.