„Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2009/Heiðranir á sjómannadag“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 23: Lína 23:

'''Samantekt Snorri Óskarsson'''

'''Samantekt Snorri Óskarsson'''

Kynning á sjómonnum
'''Kynning á sjómönnum'''

Nafn: Vignir Sigurðsson Fœóingardagur: 080466
Nafn: Vignir Sigurðsson Fœóingardagur: 080466
0
0

Útgáfa síðunnar 28. ágúst 2018 kl. 14:43

Heiðranir á sjómannadag

Sjómannafélagið Jötunn Jóhannes Esra Ingólfsson frá Lukku
Að skyldunámi loknu lærði hann járnsmíði í Magna. Fór þaðan í bifreiðavirkjun, en svo tók við nám í kjötvinnslu.
Esra hóf sjómennsku 17 ára, með Sigurði Oddssyni sem gjarnan var kallaður Bói í Dal. Með Bóa fór hann í sína fyrstu utanlandsferð þegar siglt var á Aberdeen. Næstu 8 mánuðir voru nýttir á trollveiðum. Aftur var siglt til Aberdeen og var það síðasta sigling Bóa en hann féll í höfnina og drukknaði þar.
Þá hætti hann á sjó og tók námið við. Að því loknu reri hann á Blátindi og svo Litlu Emmu. Í gosinu var hann á Hilmi KE. Eftir gos kom hann heim og þá hóf hann störf við að leggja hitaveituna í Eyjum. Leiddi það til 8 ára tímabils i landi en frá 1983 stundaði hann sjóinn nánast stanslaus með Bedda á Glófaxa. Þar sá hann mest um ummál skipverja enda var hann lengst af kokkur þar um borð.
Síðasta plássið var á Guðrúnu VE. (Gauja Rögnvalds). Slasaðist á árinu 2007 og á enn í því þannig að nú eru það alls konar verkefni sem taka huga hans allan. En hann er þekktur fyrir að vera góður kokkur og skemmtilegur félagi. Um Esra hafa myndast hinar skemmtilegustu sögur enda er maðurinn glaðlyndur og vinsæll skipverji.

Skipstjóra og Stýrimannafélagið Verðandi Kristbjörn Arnason skipstjóri á Sigurði
Sjómennska hófst á táningsárum. Hann hefur verið skipstjóri frá 1963 fyrst á Báru KE 3. Eftir það hefur hann staðið í hólnum á: Engey, Akurey, Rauðsey, Öifirisey, og nú Sigurð VE.
Skipstjórn hefur verið farsæl enda litlar mannabreytingar hjá honum, helst virðist það eiga við hann að „fastir liðir eins og venjulega“ henti best áhafnamyndum hans.
Eins og gefur að skilja þá eru ýmis atvik sem setja spor í sjómannsævina. Dýpstu sporin eru þegar menn hverfa í hafið. Það átti sér stað hjá Kristbirni en samt gefast menn ekki upp og á næstu síldarvertíð (í sumar 2008) kemur hann á síldarvertíðina, 71 ársað aldri.

Vélstjórafélag Vestmannaeyja Guðmundur Valdimarsson
Fæddur Skagamaður þann 27. mars 1935. Byrjaði til sjós sumarið 1950 á Haraldi AK þá 15 ára, haldið var á reknet á Húnaflóa. Þá var Óskar Halldórsson með bátinn á leigu. Svo urðu skipsplássin mörg bæði á síðutogurunum sem og öðrum bátum.
Tvítugur að aldri fór hann á vélstjóranámskeið 1955 - 1956, og að því loknu fór hann um borð í togarann Jón Þorláksson sem starfsmaður í vél.
1965 lá leiðin til Eyja á Ísleif IV með Guðmari Tómassyni, Gísla Jónassyni og þá Gunnari Jónssyni. Þaðan var haldið yfir á Hannes lóðs. Í gosinu var hann með Bjarnhéðni Elíassyni og lenti þá í strandinu við Eyrarbakka þar sem öll skipshöfnin bjargaðist.
Næst tók við 11 ára úthald á Valdimar Sveinssyni. Á tímabili var hann á Gjafari VE 300.
Síðustu 11 ár á sjó voru með Hannesi á Baldri. Það var lúxus líf. Við það að Baldri var lagt þá steig hann í land.

Samantekt Snorri Óskarsson

Kynning á sjómönnum
Nafn: Vignir Sigurðsson Fœóingardagur: 080466 0 Hvar ertu fœddur: I Vestmanna- eyjum á föstudaginn langa • • Hjúskaparstaóa: G i í t u r O n n u Dóm Jóhannsdóttur og eigum vió tvö uppkomin börn, Anniku ogJóhann Braga Hvenœr útskrifaðistu úr skól- anwn (fyrir stýrimenn og vél- stjóra): 1988 Hvad er gangráð (fyrir vélstjóra): Þaðerapparat til að til að halda fóstum snúningshraða þótt ytri skil- yrói breytist, t.d. álag. Hvar hófst sjómannsferillinn: Hjá Rabba á Dala-Rafni, ca. 16 ára og átta mánaða gamall. 0 Hvarertu aó róa: A Frá VE 78 Einhver eftirminnileg atvik til sjós: Já, lentum íaftaka veðri á Dohrnbankanum í mars 1993 á Andvara VE 100. Mönnum stóð ekki á sama og kokkurinn, hann Jón Ingi Steindórsson, tíndi til mánaðar birgðir af sælgæti og leyfði áhöfninni að hakka í sig herlegheitin. Hann gat ekki hugsað sér aðdallurinn færi niður með nammið í skápunum. Eftirminnilegasta persóna sem þú hefur róið með: Það er maður að nafni Brand- ur. Hann leysti Stebba (kokk á Herj- ólfi núna) af þegar ég var á Gandí VE. Skipið var hreinlega löðrandi í fitu eftir hann og snyrtimenninu Stebba féllust hendur þegar hann mætti aftur. Hefurðu orðið sjóveikur: Já þegar ég var polli (ekki í Brimnes) Fylgjandi eða andvígur núver- andifiskveiðistjórnunarkerfi: Bæði og. Uppáhalds lið í ensku knattspyrn- unni: Liverpool 66°N eóa eitthvað annað: 66° og eitthvað annað. Ertu áfacebook: Nei ég sit bara hérna á stólnum. Hvernig líst þér á Bakkajjöruhöfn: Agætlega þangað til annaö kemur í ljós. Hvað viltu fá á pulsuna: Kvenmannssköp og allt hitt í kring líka, sem sagt eina með öllu. Númer hvað eru stígvélin þín: 42. 0 Fylgjandi inngöngu Islands í ESB: Fer eftir því hvað hangir á spýtunni. Uppáhaldsvefsíða: 123.is/drullusokkar. Eitthvað að lokum: Sjómenn og íjölskyldur, til hamingju