„Leikfélag Vestmannaeyja“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 11: Lína 11:
Um aldamótin 1900 var Skugga-Sveinn settur upp í Vestmannaeyjum. Þrátt fyrir að miðaverð hefði hækkað upp í 1,50 krónur sem þótti hátt, vakti það leikrit mikla ánægju á meðal bæjarbúa sem sumir sáu það að minnsta kosti tvisvar. Á meðal leikenda voru [[Jón Filippusson]] [[Dalbær|Dalbæ]], [[Jón Einarsson]] [[Garðsstaðir|Garðsstöðum]], [[Guðjón Guðjónsson]] [[Sjólyst]], [[Sigríður Jónsdóttir]] [[Garðsstaðir|Garðsstöðum]] og fleiri.  
Um aldamótin 1900 var Skugga-Sveinn settur upp í Vestmannaeyjum. Þrátt fyrir að miðaverð hefði hækkað upp í 1,50 krónur sem þótti hátt, vakti það leikrit mikla ánægju á meðal bæjarbúa sem sumir sáu það að minnsta kosti tvisvar. Á meðal leikenda voru [[Jón Filippusson]] [[Dalbær|Dalbæ]], [[Jón Einarsson]] [[Garðsstaðir|Garðsstöðum]], [[Guðjón Guðjónsson]] [[Sjólyst]], [[Sigríður Jónsdóttir]] [[Garðsstaðir|Garðsstöðum]] og fleiri.  


Á meðal annarra leikrita sem sett voru upp um aldamótin og rétt eftir þau í Vestmannaeyjum voru "Sálin hans Jóns míns", "Kaupmannsstrikið" og "Vesturfararnir". Árið 1909 var einnig sýnt í fyrsta skipti leikritið "Almannarómur" eftir [[Steinn Sigurðsson|Steinn Sigurðsson]] skólastjóra [[Barnaskólinn í Vestmannaeyjum|Barnaskólans]] sem var í fimm þáttum. Líklegt er talið að leikendur þar hafi verið [[Helgi Guðmundsson]] í [[Dalbær|Dalbæ]] og [[Hjálmrún Hjálmarsdóttir]] og [[Jón Jónsson]] í [[Hlíð]]. Steinn skólastjóri var þekktur rithöfundur bæði á bundið og óbundið mál. Auk almannaróms samdi hann stórt leikrit sem heitir "Stormur", barnaleikrit sem nefnt var í Eyjum "Átján barna faðir í álfheimum" en hét annars "Skyggnu augun" og fleira.
Á meðal annarra leikrita sem sett voru upp um aldamótin og rétt eftir þau í Vestmannaeyjum voru "Sálin hans Jóns míns", "Kaupmannsstrikið" og "Vesturfararnir". Árið 1909 var einnig sýnt í fyrsta skipti leikritið "Almannarómur" eftir [[Steinn Sigurðsson|Steinn Sigurðsson]] skólastjóra [[Barnaskólinn í Vestmannaeyjum|Barnaskólans]] sem var í fimm þáttum. Líklegt er talið að leikendur þar hafi verið [[Helgi Guðmundsson]] í [[Dalbær|Dalbæ]] og [[Hjálmrún Hjálmarsdóttir]] og [[Jón Jónsson]] í [[Hlíð]]. Steinn skólastjóri var þekktur rithöfundur bæði á bundið og óbundið mál. Auk almannaróms samdi hann stórt leikrit sem heitir "Stormur" og barnaleikrit sem nefnt var í Eyjum "Átján barna faðir í álfheimum" en hét annars "Skyggnu augun". Í því leikriti voru það börn úr barnaskólanum sem fóru með öll hlutverkin. Þau eldri voru í aðalhlutverkunum en þessi yngri komu fram sem álfar og dansandi vættir sem meðal annars sýndu dans í búningum sem voru sérstaklega gerðir fyrir þetta tilefni.  


Saga leiklistar í Vestmannaeyjum frá þessum tíma er að mestu leyti glötuð með bókum og skjölum félagsins en þó má styðjast við heimildir úr bæjarblöðum sem bæta skaðann að nokkru leyti.  
Saga leiklistar í Vestmannaeyjum frá þessum tíma er að mestu leyti glötuð með bókum og skjölum félagsins en þó má styðjast við heimildir úr bæjarblöðum sem bæta skaðann að nokkru leyti.  

Útgáfa síðunnar 27. júní 2006 kl. 10:03

Mynd frá uppfærslu hjá Leikfélagi Vestmannaeyja snemma á 20. öldinni.

Saga leiklistar frá 1852-1909

Árið 1852 var sýndur sjónleikur í Vestmannaeyjum og mun það vera í fyrsta sinn sem sýning var í Vestmannaeyjum. Það sama ár greiða einhverjir leikendur ágóðann af leiksýningu til bæjarsjóðs. Ekki er vitað hverjir voru leikendur né hvaða verk var sýnt en vel getur verið að leikritið hafi verið eftir Sigurð Pétursson skáld en það getur allt eins hafa verið danskt og leikið á dönsku.

Árið 1852 flytur Séra Brynjólfur Jónsson til Vestmannaeyja og býr í Nöjsomhed ásamt konu sinni og dóttur. Líklegt þykir að Brynjólfur hafi komið upp leiksýningum í samráði við fleiri aðila. Brynjólfur var menningarfrömuður og talið er fullvíst að hann hafi komið upp leikritunu "Narfi" eftir Sigurð Pétursson árið 1860-1861. Talið er að á meðal leikenda hafi verið Kristján Magnússon verslunarstjóri, Ingimundur Jónsson á Gjábakka, Gísli Lárusson og fleiri.

Árið 1864 var sett upp leikritið "Hrjólfur" og talið er að leikendur hafi verið þeir sömu og í Narfa. Árin 1886-1888 var leikritið Hrjólfur sett upp í Kumbalda. Á meðal leikenda þá voru Árni Filippusson sem lék Hrjólf, Sigurður Sigurfinnsson, Gísli Lárusson, Einar Bjarnason og fleiri.

Þessar tvær sýningar, það er Narfi og Hrjólfur voru sýndar annað veifið fram til ársins 1890 eða 1891. Árið 1893 var "Tólfkóngavitið" leikið hér og ári síðar "Hinn þriðji" sem var byggt upp á söngvum og tónlist. Á meðal þeirra sem stóðu að baki þessum sýningum voru Oddur Árnason, Guðlaugur Hansson Litlabæ, Guðrún Runólfsdóttir og Sigurbjörg R. Pétursdóttir. Var sagt að söng þeirra Guðrúnar og Sigurbjargar hafi verið minnst lengi sem frábærlega góðum.

Um aldamótin 1900 var Skugga-Sveinn settur upp í Vestmannaeyjum. Þrátt fyrir að miðaverð hefði hækkað upp í 1,50 krónur sem þótti hátt, vakti það leikrit mikla ánægju á meðal bæjarbúa sem sumir sáu það að minnsta kosti tvisvar. Á meðal leikenda voru Jón Filippusson Dalbæ, Jón Einarsson Garðsstöðum, Guðjón Guðjónsson Sjólyst, Sigríður Jónsdóttir Garðsstöðum og fleiri.

Á meðal annarra leikrita sem sett voru upp um aldamótin og rétt eftir þau í Vestmannaeyjum voru "Sálin hans Jóns míns", "Kaupmannsstrikið" og "Vesturfararnir". Árið 1909 var einnig sýnt í fyrsta skipti leikritið "Almannarómur" eftir Steinn Sigurðsson skólastjóra Barnaskólans sem var í fimm þáttum. Líklegt er talið að leikendur þar hafi verið Helgi Guðmundsson í Dalbæ og Hjálmrún Hjálmarsdóttir og Jón Jónsson í Hlíð. Steinn skólastjóri var þekktur rithöfundur bæði á bundið og óbundið mál. Auk almannaróms samdi hann stórt leikrit sem heitir "Stormur" og barnaleikrit sem nefnt var í Eyjum "Átján barna faðir í álfheimum" en hét annars "Skyggnu augun". Í því leikriti voru það börn úr barnaskólanum sem fóru með öll hlutverkin. Þau eldri voru í aðalhlutverkunum en þessi yngri komu fram sem álfar og dansandi vættir sem meðal annars sýndu dans í búningum sem voru sérstaklega gerðir fyrir þetta tilefni.

Saga leiklistar í Vestmannaeyjum frá þessum tíma er að mestu leyti glötuð með bókum og skjölum félagsins en þó má styðjast við heimildir úr bæjarblöðum sem bæta skaðann að nokkru leyti.

Sýningarstaðir

Í upphafi var leikið í Kumbalda. Kumbaldi var eitt af verslunarhúsum Bryde verslunarinnar. Þótti sá staður af mörgum kaldur og leiðinlegur en það var þó alls ekki algilt. Það var á þeim tíma besta leikhúsið. Leiksviðið var rúmt og það var sett upp og tekið niður eftir þörfum. Sætun þóttu vera góð þrátt fyrir að vera baklaus. Það var einnig kostur við Kumbalda að þar gátu leikendur æft sig á leiksviðinu þegar það hentaði. Einnig var leikið í Gúttó en ýmsum þótti sá staður hlýlegri. Gúttó var reyndar oft upptekið vegna skemmtana og mannfagnaða en bið eftir leiksýningum var þó almennt ekki löng. Þar gátu um 140 manns setið. Leiksviðið í Gúttó þótti þó þröngt og var þröngt á bak við tjöldin. Helst gátu tveir ekki mæst þar án þess að faðmast eða renna sér mjög náið hvor meðfram öðrum.

Leikfélagið var stofnað 22. ágúst 1910.


Heimildir

  • Árni Árnason. Blik ársrit Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum. 1962