„Toppönd“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
 
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
'''Toppönd''' (Mergus serrator)
'''Toppönd''' (Mergus serrator)

Toppendur eru önnur tveggja tegunda fiskianda hér á landi, hin kallast gulönd. Fiskiendur eru kafendur sem éta nær eingöngu seiði og smáfisk eins og nafnið gefur til kynna. Toppendur eru algengar hér um allt land nema á hálendinu. Stofnstærðin er talin 2.000–4.000 varppör en allstór hluti stofnsins hefur hér vetursetu eða á bilinu 5.000–15.000 fuglar, sem halda sig þá mest á sjó meðfram ströndum landsins. Sumarheimkynnin eru við veiðivötn og ár en einnig að hluta til á grunnsævi. Varpsvæði eru lyngmóar eða kjarrlendi, en toppendur fela hreiður sín einkar vel og verpa því gjarnan í holur og glufur. Varptíminn er í júní og fram í ágúst. Eggin eru 7–12 talsins. Heimilt er að veiða toppendur og mun eitthvað gert af því.
Toppendur eru önnur tveggja tegunda fiskianda hér á landi, hin kallast gulönd. Fiskiendur eru kafendur sem éta nær eingöngu seiði og smáfisk eins og nafnið gefur til kynna.  
 
Toppendur eru algengar hér um allt land nema á hálendinu. Stofnstærðin er talin 2.000–4.000 varppör en allstór hluti stofnsins hefur hér vetursetu eða á bilinu 5.000–15.000 fuglar, sem halda sig þá mest á sjó meðfram ströndum landsins.  
 
Sumarheimkynnin eru við veiðivötn og ár en einnig að hluta til á grunnsævi. Varpsvæði eru lyngmóar eða kjarrlendi, en toppendur fela hreiður sín einkar vel og verpa því gjarnan í holur og glufur. Varptíminn er í júní og fram í ágúst. Eggin eru 7–12 talsins. Heimilt er að veiða toppendur og mun eitthvað gert af því.

{{Heimildir|
{{Heimildir|
* http://www.islandsvefurinn.is}}
* http://www.islandsvefurinn.is}}

Útgáfa síðunnar 26. júní 2006 kl. 14:48

Toppönd (Mergus serrator)

Heimildir