„Halldór Halldórsson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Smáleiðr.)
(viðbót)
Lína 1: Lína 1:
Halldór Halldórsson fæddist á Stokkseyri en bjó að [[Helgafellsbraut]] 23 í Vestmannaeyjum.
'''Halldór Elías Halldórsson''' fæddist á Stokkseyri 23. júlí 1902 og lézt í Reykjavík 11. september 1975.

Foreldrar hans voru Halldór sjómaður á Sjónarhóli á Stokkseyri, f. 4. ágúst 1863 í Oddasókn í Rangárvallasýslu, d. 5. apríl 1942, Magnúsar Eiríkssonar vinnumanns á Helluvaði þar, síðar bónda á Stokkalæk þar, f. 1831, d. 1894 og konu Magnúsar Eiríkssonar, Guðrúnar vinnukonu, síðar konu hans og húsmóður á Stokkalæk, f. 1831, d. 1891. Móðir Halldórs Elíasar og kona Halldórs á Sjónarhóli var Jónína Sigríður húsfreyja, f. 17. júlí 1865 á Þverlæk í Árbæjarsókn í Rangárvallasýslu, d. 24. febrúar 1938, Sigurðar á Þverlæk Sigurðssonar og konu Sigurðar, Guðnýjar Guðmundsdóttur.

Halldór Elías kom ungur til Eyja. Hann stundaði sjómennsku frá 16 ára aldri í 42 ár eða til ársins 1960. Halldór byrjaði formennsku á [[Gullfoss|Gullfossi]] árið 1929. Hann keypti [[Þuríður Formaður|Þuríði Formann]] árið 1941 og var þar formaður.

Hann veiktist af berklum og varð að hætta sjómennsku. Hafði hann þá verið stýrimaður á [[Baldur|Baldri]] VE 24 síðustu 10 árin. Hann réðst síðar innheimtumaður hjá bæjarfógeta. Þau hjón Sigríður og Halldór Elías fluttust til Reykjavíkur. Síðast bjuggu hjónin að [[Helgafellsbraut]] 23 í Eyjum.

Maki (1934): [[Sigríður Friðriksdóttir]], f. 1908.

Barn (kjörbarn): [[Jón Berg Halldórsson]], f. 1935.

Halldór byrjaði formennsku á [[Gullfoss]]i árið 1929. Hann kaupir [[Þuríður Formaður|Þuríði Formann]] árið 1941 og var þar formaður.

Heimildir:
{{Heimildir|
* ''Sjómannablaðið Víkingur.'' 5 tbl. 1968. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
* ''Sjómannablaðið Víkingur.'' 5 tbl. 1968. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.}}
*Jón Berg Halldórsson.
*Manntal 1910.
*''Rangvellingabók''.
*Guðni Jónsson: ''Bólstaðir og búendur í Stokkseyrarhreppi''. Reykjavík: Stokkseyringafélagið í Reykjavík, 1952. Bls.390.

[[Flokkur:Formenn]]
[[Flokkur:Formenn]]
[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Fólk]]

Útgáfa síðunnar 6. desember 2006 kl. 19:25

Halldór Elías Halldórsson fæddist á Stokkseyri 23. júlí 1902 og lézt í Reykjavík 11. september 1975.
Foreldrar hans voru Halldór sjómaður á Sjónarhóli á Stokkseyri, f. 4. ágúst 1863 í Oddasókn í Rangárvallasýslu, d. 5. apríl 1942, Magnúsar Eiríkssonar vinnumanns á Helluvaði þar, síðar bónda á Stokkalæk þar, f. 1831, d. 1894 og konu Magnúsar Eiríkssonar, Guðrúnar vinnukonu, síðar konu hans og húsmóður á Stokkalæk, f. 1831, d. 1891. Móðir Halldórs Elíasar og kona Halldórs á Sjónarhóli var Jónína Sigríður húsfreyja, f. 17. júlí 1865 á Þverlæk í Árbæjarsókn í Rangárvallasýslu, d. 24. febrúar 1938, Sigurðar á Þverlæk Sigurðssonar og konu Sigurðar, Guðnýjar Guðmundsdóttur.
Halldór Elías kom ungur til Eyja. Hann stundaði sjómennsku frá 16 ára aldri í 42 ár eða til ársins 1960. Halldór byrjaði formennsku á Gullfossi árið 1929. Hann keypti Þuríði Formann árið 1941 og var þar formaður.
Hann veiktist af berklum og varð að hætta sjómennsku. Hafði hann þá verið stýrimaður á Baldri VE 24 síðustu 10 árin. Hann réðst síðar innheimtumaður hjá bæjarfógeta. Þau hjón Sigríður og Halldór Elías fluttust til Reykjavíkur. Síðast bjuggu hjónin að Helgafellsbraut 23 í Eyjum.
Maki (1934): Sigríður Friðriksdóttir, f. 1908.
Barn (kjörbarn): Jón Berg Halldórsson, f. 1935.

Heimildir:

• Sjómannablaðið Víkingur. 5 tbl. 1968. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
• Jón Berg Halldórsson.
• Manntal 1910.
• Rangvellingabók.
• Guðni Jónsson: Bólstaðir og búendur í Stokkseyrarhreppi. Reykjavík: Stokkseyringafélagið í Reykjavík, 1952. Bls.390.