„Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1959/ Aflakóngur Eyjanna“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: <big><big><center>Aflakóngur Eyjanna</center></big></big><br> Benóný Friðriksson, eða Binni í Gröf eins og hann er nefndur í daglegu tali skipstjóri á m/b Gullbor...) |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
<big><big><center>Aflakóngur Eyjanna</center> | <big><big><center>Aflakóngur Eyjanna</center> | ||
[[Mynd:Binni í Gröf Sdbl. 1959.jpg|miðja|thumb]] | |||
<br> | |||
[[Benóný Friðriksson]], eða Binni í [[Gröf]] eins og hann er nefndur í daglegu tali skipstjóri á m/b [[Gullborg VE|Gullborgu RE 38]], sem er 84 lesta bátur, er fæddur í Vestmannaeyjum 7. janúar 1904. Hann varð aflakóngur Vestmannaeyja nú á nýafstaðinni vertíð og er þetta sjötta vertíðin í röð, sem hann er aflakóngur Eyjanna, og er það einnig sjötta vertíðin, sem hann er aflakóngur yfir allt landið. Á hinni nýafstöðnu vertíð fékk Binni og skipshöfn hans 1160 tonn af óslægðum fiski. | [[Benóný Friðriksson]], eða Binni í [[Gröf]] eins og hann er nefndur í daglegu tali skipstjóri á m/b [[Gullborg VE|Gullborgu RE 38]], sem er 84 lesta bátur, er fæddur í Vestmannaeyjum 7. janúar 1904. Hann varð aflakóngur Vestmannaeyja nú á nýafstaðinni vertíð og er þetta sjötta vertíðin í röð, sem hann er aflakóngur Eyjanna, og er það einnig sjötta vertíðin, sem hann er aflakóngur yfir allt landið. Á hinni nýafstöðnu vertíð fékk Binni og skipshöfn hans 1160 tonn af óslægðum fiski. |
Útgáfa síðunnar 9. mars 2018 kl. 15:49
Benóný Friðriksson, eða Binni í Gröf eins og hann er nefndur í daglegu tali skipstjóri á m/b Gullborgu RE 38, sem er 84 lesta bátur, er fæddur í Vestmannaeyjum 7. janúar 1904. Hann varð aflakóngur Vestmannaeyja nú á nýafstaðinni vertíð og er þetta sjötta vertíðin í röð, sem hann er aflakóngur Eyjanna, og er það einnig sjötta vertíðin, sem hann er aflakóngur yfir allt landið. Á hinni nýafstöðnu vertíð fékk Binni og skipshöfn hans 1160 tonn af óslægðum fiski.
Binni í Gröf byrjaði sjómennsku innan við fermingu eða 13 ára gamall. Árið 1921 varð hann formaður og hefur verið óslitið skipstjóri síðan. Hann hefur verið framúrskarandi fengsæll skipstjórnarmaður alla sína formannstíð.
Í þessum tímamótum vill Sjómannadagsblað Vestmannaeyja færa honum og skipshöfn hans innilegustu hamingjuóskir.