„Elna Andersen (Grund)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Elna Andersen''' á Grund fæddist 12. september 1912 á Patreksfirði.<br> Foreldrar hennar voru Jens Andersen skipasmiður frá Frederikssund í Danmörku, f. 10. ágúst...) |
m (Verndaði „Elna Andersen (Grund)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 13. apríl 2016 kl. 22:29
Elna Andersen á Grund fæddist 12. september 1912 á Patreksfirði.
Foreldrar hennar voru Jens Andersen skipasmiður frá Frederikssund í Danmörku, f. 10. ágúst 1885, og kona hans Svanlaug Þóra Magnúsdóttir húsfreyja á Patreksfirði, f. 26. október 1885, d. 1. september 1915.
Föðurbræður Elnu voru:
1. Pétur Andersen formaður, ættfaðir Andersen-ættar í Eyjum, og
2. Svend Ove Andersen.
Systkini Elnu voru:
3. Adolf Andersen.
4. Jenný Andersen.
Hálfbróðir Elnu, samfeðra, var
5. Torfi Alexander (Andersen) Helgason sjómaður.
Bræðrungar Elnu, synir Svends Ove Andersen eru:
6. Erling Andersen.
7. Arnar Andersen
Elna var flutt til Eyja frá Patreksfirði 1915, eftir að móðir hennar lést, var þriggja ára tökubarn á Grund hjá Jóhönnu og Árna 1915 og var þar enn 1925, en farin 1927.
Hún var ráðskona hjá norskum manni Karl Anton Emanuel Silen á Grund 1930, en hann hafði komið til Eyja frá Norðfirði á árinu.
Elna finnst ekki síðan.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.