„Dóróthea Ólafsdóttir (London)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Dóróthea Ólafsdóttir''' frá London, vinnukona á Brimnesi í Seyðisfirði fæddist 1861 og lést 13. júlí 1894.<br> Foreldrar hennar voru [[Ólafur Magnússon (London)|...)
 
m (Verndaði „Dóróthea Ólafsdóttir (London)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
 
(Enginn munur)

Núverandi breyting frá og með 21. mars 2016 kl. 11:38

Dóróthea Ólafsdóttir frá London, vinnukona á Brimnesi í Seyðisfirði fæddist 1861 og lést 13. júlí 1894.
Foreldrar hennar voru Ólafur Magnússon bóndi í Berjanesi u. Eyjafjöllum, síðar í London, f. 18. júlí 1828, d. 21. mars 1904, og fyrri kona hans Elsa Dóróthea Árnadóttir húsfreyja, f. 29. september 1832, d. 21. september 1877.

Dóróthea var með foreldrum sínum í æsku. Móðir hennar lést 1877. Faðir hennar fór með fimm börn sín til Eyja 1878. Þar kvæntist hann Unu Guðmundsdóttur í London, en hún var þá nýlega orðin ekkja eftir Guðmund Erlendsson.
Dóróthea fór að Jómsborg og var þar vinnukona til 1890, er hún réðst vinnukona að Garðinum. Hún var vinnukona í London 1891.
Dóróthea var vinnukona í Steinum 1892 og enn 1894. Hún réðst kaupakona til Seyðisfjarðar 1894, en lést þar í júlí.
Hún var ógift og barnlaus í Eyjum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.