„Oktavía Guðný Guðmundsdóttir“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Oktavía Guðný Guðmundsdóttir''' frá Seyðisfirði, húsfreyja í Helli fæddist 5. október 1893 og lést 22. október 1980.<br> Foreldrar hennar voru [[Guðmundur...) |
m (Verndaði „Oktavía Guðný Guðmundsdóttir“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 20. febrúar 2016 kl. 14:52
Oktavía Guðný Guðmundsdóttir frá Seyðisfirði, húsfreyja í Helli fæddist 5. október 1893 og lést 22. október 1980.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Einarsson frá Miðhúsum, sjómaður og útgerðarmaður á Seyðisfirði, f. 12. apríl 1856, d. 2. ágúst 1936, og kona hans Oddný Ólafsdóttir frá London, f. 6. ágúst 1859 í Steinasókn og lést 23. maí 1926.
Systir hennar var
Elsa Dóróthea Ólafía Guðmundsdóttir húsfreyja í Vinaminni og á Þingvöllum, f. 28. apríl 1889 á Seyðisfirði, d. 4. desember 1918.
Oktavía Guðný var með foreldrum sínum í Guðmundarhúsi á Seyðisfirði 1901 og á Hlíðarenda þar 1910.
Hún fluttist til Eyja 1917, giftist Sigurði í lok ársins. Þau bjuggu í Hraungerði 1917-1923.
Þau reistu húsið Helli 1923 og bjuggu þar síðla árs 1923 og síðan.
Oktavía Guðný ól þar 3 börn.
Hún bjó síðast á Hjallabraut 13 í Hafnarfirði, lést 1980. Hún var jarðsett í Eyjum.
Maður Oktavíu, (24. nóvember 1917), var Sigurður Gíslason verkamaður, síðar múrarameistari í Helli, f. 8. júní 1885, d. 6. júní 1951.
Börn þeirra voru:
1. Elsa Dóróthea Sigurðardóttir húsfreyja á Húsavík, 4. nóvember 1922, d. 7. júní 1997.
2. Oddný Guðrún Sigurðardóttir húsfreyja í Eyjum og Hafnarfirði, f. 28. ágúst 1927, d. 26. febrúar 1997.
3. Guðmundur Vignir Sigurðsson verkamaður í Eyjum, f. 20. desember 1933, d. 5. nóvember 1978.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Garður.is
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.