„Salbjörg Bjarnadóttir“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Salbjörg Bjarnadóttir''' húsfreyja á Bergi fæddist 14. maí 1899 á Grund í Grundarfirði. <br> Foreldrar hennar voru Bjarni Bjarnason bóndi og smiður á Hellnafelli, f...) |
m (Verndaði „Salbjörg Bjarnadóttir“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 20. febrúar 2016 kl. 14:16
Salbjörg Bjarnadóttir húsfreyja á Bergi fæddist 14. maí 1899 á Grund í Grundarfirði.
Foreldrar hennar voru Bjarni Bjarnason bóndi og smiður á Hellnafelli, f. 16. nóvember 1863, d. 13. júlí 1910, og kona hans Þorbjörg Stefanía Jakobsdóttir húsfreyja, f. 30. september 1878. d. 19. janúar 1947.
Salbjörg var með foreldrum sínum á Hellnafelli á Snæfellsnesi 1901 og 1910, var vinnukona í húsi Halldórs Kristinssonar í Hólshreppi í N-Ísafjarðarsýslu 1920.
Hún kom til Eyja 1929 og bjó með Haraldi Jónssyni á Bergi 1930, en finnst ekki síðan.
Sambýlismaður Salbjargar var Haraldur Jónsson sjómaður á Bergi, f. 18. nóvember 1899 á Gamla-Hrauni á Eyrarbakka, d. 20. febrúar 1962.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.