„Sigurjón Þorvaldur Árnason“: Munur á milli breytinga
(bæti við) |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 8: | Lína 8: | ||
{{Heimildir| | {{Heimildir| | ||
* Guðlaugur Gíslason: ''Eyjar gegnum aldirnar''. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982. | |||
* Þorsteinn Þ. Víglundsson. ''Blik, ársrit Vestmannaeyja''. Maí 1974.}} | * Þorsteinn Þ. Víglundsson. ''Blik, ársrit Vestmannaeyja''. Maí 1974.}} | ||
[[Flokkur:Fólk]] | [[Flokkur:Fólk]] | ||
[[Flokkur:Prestar]] | [[Flokkur:Prestar]] |
Útgáfa síðunnar 4. september 2006 kl. 10:49
Sigurjón Þorvaldur Árnason var prestur í Vestmannaeyjum á árunum 1924 til 1944. Hann var fæddur 3. mars 1897 á Sauðárkróki, sonur Árna prófasts að Görðum á Álftanesi og konu hans Líneyjar Sigurjónsdóttur óðalsbónda Jóhannessonar á Laxamýri.
Sigurjón lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1917. Cand. theol. frá Háskóla Íslands 1921. Var við framhaldsnám í trúarheimspeki í Kaupmannahöfn veturinn 1921 til 1922. Fékk veitingu fyrir Vestmannaeyjaprestakalli árið 1924 eftir fráfall sóknarprestsins þar séra Oddgeirs Þórðarsonar Gudmundsen og Hallgrímsprestakalli í Reykjavík 1944. Séra Sigurjón var lengi formaður barnaverndarnefndar Vestmannaeyja og starfaði mikið að málefnum K.F.U.M. og K. í Vestmannaeyjum. Kona hans var Þórunn Eyjólfsdóttir Kolbeins, prests að Staðarbakka, og áttu þau sjö börn. Þau bjuggu að Ofanleiti.
Sigurjón efldi kristna hugsun á meðal Eyjaskeggja og var í hvívetna áhrifaríkur aðili þar sem hann lagði hönd á plóginn.
Séra Sigurjón sat í skólanefnd flest eða öll árin sem hann var sóknarprestur í Eyjum. Auk þess gerðist hann forgöngumaður kristilegs félagsskapar í bænum til eflingar kirkju og kristindómi.
Heimildir
- Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.
- Þorsteinn Þ. Víglundsson. Blik, ársrit Vestmannaeyja. Maí 1974.