„Engilbert Gíslason“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
 
Ekkert breytingarágrip
Lína 10: Lína 10:


Kona Engilberts var [[Guðrún Sigurðardóttir]] frá Borg í Mýrum. Þau áttu 7 börn.
Kona Engilberts var [[Guðrún Sigurðardóttir]] frá Borg í Mýrum. Þau áttu 7 börn.
[[Flokkur:Stubbur]]
[[Flokkur:Listamenn]]
[[Flokkur:Fólk]]

Útgáfa síðunnar 8. júní 2006 kl. 10:43

Engilbert Gíslason var fæddur í Vestmannaeyjum 12. október árið 1877, sonur hjónanna Gísla Engilbertssonar og Ragnhildar Þórarinsdóttur.

Engilbert vann að verslunarstörfum fram undir tvítugsaldur. Á því tímabili var hann heilsulítill en hann náði loks fullri heilsu eftir fjögurra ára veikindi.

Sumarið 1899 fór Engilbert til Kaupmannahafnar til þess að hefja þar nám við málaraiðn. Engilbert leið vel í Danmörku og dvaldist þar við námið í þrjú ár en framlengdi dvölina um eitt ár til þess að vinna hjá meisturum sínum og húsbændum.

Eftir að Engilbert snéri til landsins á ný fluttist hann til Eyja til að mála Landakirkju. Eftir það dvaldist hann í 6 ár við málarastörf í Reykjavík en fluttist svo til Eyja 1910 og var þar allar götur síðan.

Sagt er að Engilbert hafi ætíð vilja gera sem minnst úr málaralist sinni en mörg málverk hans bera þess vitni hversu góður listamaður Engilbert var.

Kona Engilberts var Guðrún Sigurðardóttir frá Borg í Mýrum. Þau áttu 7 börn.