„Blik 1969/Endurminningar II. hluti“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 206: Lína 206:
Skötulóðin var með fáum og stórum segulnaglaönglum íslenzkum af sömu gerð og hér voru notaðir á handfæri. Ás skötulóðarinnar var mjór kaðall.

Skötulóðin var með fáum og stórum segulnaglaönglum íslenzkum af sömu gerð og hér voru notaðir á handfæri. Ás skötulóðarinnar var mjór kaðall.

Skötulóðin var látin liggja um sólarhring og stundum lengur, ef veður bagaði. Þessi lóð virtist engin áhrif hafa í þá átt að hvetja menn til þess að nota þorskalóð.
Skötulóðin var látin liggja um sólarhring og stundum lengur, ef veður bagaði. Þessi lóð virtist engin áhrif hafa í þá átt að hvetja menn til þess að nota þorskalóð.
==Magnús Guðmundsson býr sig undir brautryðjandastarfið==
''Hann dregur að sér efni í línuna. Ekki skorti hrakspárnar. [[Ólafur Magnússon (London|Ólafur útgerðarmaður í London]] hvetur Magnús til dáða: „Gefðu þig aldrei, Magnús. Það verður sjaldan mikið úr ungum mönnum, sem hætta við áform sín.“''

Þrátt fyrir þetta, sem nú hefur verið minnzt á, fór mér að detta í hug að gera tilraun með þorskalóð. Jafnframt var mér það ljóst, að það mundi mæta andúð og óvíst, hvort ég kæmi því í framkvæmd.

Síðara sumarið, sem ég var á Austfjörðum, útvegaði ég mér heimilisfang þeirra útlenzku verksmiðja, sem þeir í Mjóafirði fengu veiðarfæri frá. Þar var notuð tveggja punda lína í ás og fjögurra punda lína í bólfæri. Í tauma var notuð eins punds lína, sem var rakin sundur á sérstakan hátt. Önglarnir voru frá Mustad og Sön.

Fyrsti maðurinn, sem ég talaði við um þetta áform mitt var Ólafur Magnússon, eigandi skips þess, er ég var formaður með á vetrarvertíðum, Ólafur í London.

Mér þótti miklu máli skipta, hvernig Ólafur tæki í þetta mál, þar sem hann fékk um 1/4 aflans í sinn hlut, — bátshluti fjóra og tvo hásetahluti. Ég tjáði honum hugmynd mína að reyna lóðina hér úti í leirnum, þegar liði fram á aprílmánuð, því að þar hefði lóð aldrei verið lögð. Ólafur tók vel í þetta mál og hvatti mig til að koma því í framkvæmd. Hann kvað ekki skyldi standa á sér að leggja sitt til þess, að þessi tilraun mætti takast.

Einnig orðaði ég þessa hugmynd við nokkra yngri háseta mína, — helzt þó þá, sem kynnzt höfðu lóðinni á Austfjörðum. Hvöttu þeir mig eindregið allir til þess að reyna þetta, en þeir unnu allir á vegum feðra sinna eða annarra húsbænda og höfðu þvi engin fjárráð.

Næst þessu fór ég til [[Gísli Stefánsson|Gísla Stefánssonar]] kaupmanns. Hann sigldi um árabil út til Englands til þess að gera vöruinnkaup og þekkti sig því þar. Hann vildi aðstoða mig við að ná í öngla og strengi frá Englandi, en greiðsla yrði að fylgja pöntun, sagði hann.

Ég gerði ráð fyrir að hefja línuveiðarnar með 1600 önglum. Annað eins þurfti ég að eiga til vara, ef illa tækist til, svo sem ef yfirgefa yrði lóðina vegna veðurs. Einnig gat svo illa til tekizt, að lagt yrði á hraun og lóðin tapaðist þar. Þá gat einnig hákarlinn klippt lóðina sundur, eins og oft kom fyrir á Austfjörðum. Við öllum þessum óhöppum vildi ég vera búinn. Línuveiðarnar skyldu reyndar til þrautar. Næst þessu tók ég að biðja um framlag af hverjum hlut, — kr. 7,50 afréð ég. Ýmist fékk ég ekkert loforð um styrkinn eða óákveðið — loðið og lítið á að byggja. Nokkrir tóku illa málaleitan minni: töldu það hina mestu dirfsku að ætla sér að nota þorskalóð við Eyjar, — hér úti í hafi. Menn vissu mýmörg dæmi þess, að svo snögglega hefði hvesst á þessum slóðum, að menn hefðu flýtt sér að hafa upp færin og seglbúa, — komast sem allra fyrst í land. Svo hefði það líka sýnt sig, sögðu menn, að hér veiddist ekki á lóð, enda væri það bezt, því að menn mundu drepa sig hér unnvörpum, ef farið yrði almennt að nota það veiðarfæri.

Ég gekk nú á fund Ólafs skipseiganda og tjáði honum undirtektirnar og álit ýmissa á framtaki þessu. Það var haustið 1896.

Meðan ég lét dæluna ganga, gekk Ólafur um gólf og sagði við og við: „Já, ójá; já, já.“

Ég hafði lokið máli mínu, og enn gekkk Ólafur Magnússon um gólf, hugsandi.

Mér flaug ýmislegt í hug. Var honum nú snúinn hugur, þegar hann heyrði, hve margir voru á móti mér?

Allt í einu kemur hann fast að mér og segir með mikilli áherzlu á hverju orði: „Gefðu þig aldrei, Magnús: það verður sjaldan mikið úr ungum mönnum, sem hætta við áform sín.“

Ég kvaðst vera honum þakklátur fyrir orðin, og væri ég ekki í þeim hug, að hætta við þetta. Hinsvegar hlyti að koma annað hljóð í strokkinn minn, ef ég fengi hvergi peninga til lóðakaupanna.

Þá sagði Ólafur: „Þú getur fengið peningana hjá mér. Misheppnist þetta, getum við haft það grafið og gleymt. Takist áformið hinsvegar, lukkist það, sem ég treysti, þá verða karlarnir fúsir til þess að borga þetta eftir á.“
==Línurúlla, goggar, bjóð og kálfsbelgir eins og í Mjóafirði==
Eftir að lóðarefnið var komið, unnum við nokkrir að því að setja lóðina upp. Sumir þeirra höfðu aldrei séð lóð áður. Líka voru ýmis áhöld smíðuð til línuveiðanna, svo sem línurúlla, goggar, bjóð. Þá voru drepnir og flegnir kálfar til þess að hafa belgina í ból, — línuból. Allt var útbúið, eins og það ætti að notast austur á Mjóafirði. Þegar línan og öll hennar fylgitæki voru tilbúin, voru veiðitæki þessi öll geymd þar til síðari hluta næstu vertíðar (1897). Þá var ætlunin að nota þau. Mér kom það þá ekki til hugar, að vertíð hæfist hér nokkru sinni með línu. Við vildum vanda sem bezt allan undirbúning veiðanna með lóð og bíða svo, þar til veður færu að stillast eða fram í aprílmánuð.
==Veiðarnar hefjast==
''Línan ryður sér til rúms. Sultarvofan flýr loks frá dyrum Eyjabúa.
Laugardagurinn 10. apríl 1897 er einn allra merkasti dagur í sögu
Vestmannaeyja. Fiskur á öðrum hverjum krók til jafnaðar.''

Vertíðina 1897 hófum við róðra 4. marz. Janúar og febrúar voru þá með fádæmum stormasamir.

Þessa vertíð notuðum við handfæri til 10. apríl, og alltaf hékk lóðin ónotuð inni í húsi.

Dagana 7. og 8. apríl leituðum við víða fisks, en fengum aðeins einn í hlut. — Ördeyða. Við fengum þá ekki svo mikið sem beitu á lóðina.

Þann 9. apríl réri smáfleyta inn á [[Flúðir]] og hlóð þar, — aðallega af þorski. Eg keypti öll hrognin úr aflanum, en þau nægðu ekki á helming lóðarinnar, svo að ég fékk mér keilu og smáfisk í viðbót. Þannig tókst okkur að egna þessa 1600 króka, sem við vildum róa með.

Árla morguns hinn 10. apríl byrjuðum við að beita línuna. Kl. 10 f.h. sama dag lögðum við frá landi í fyrsta línuróðurinn.

Blíðuveður var um láð og lög, og við byrjuðum að leggja nokkuð langt austur af [[Réttarklakkur|Réttarklakk]]. Þar lögðum við alla lóðina beint í austur.

Þegar við höfðum lokið við að leggja, tók að vinda af austri. Svo að við héldum okkur við ytra endabólið og fórum ekki á milli, eins og það var kallað á Austfjörðum.

Þegar línan hafði legið í einn tíma, fórum við að draga.

Endafærið eða stjórinn virtist fast í hrauni, og svo illa, að við slitum bólfærið eftir lítinn tíma. Við rérum nú í næsta ból. Á milli bóla voru tvö bjóð eða 400 önglar. Það bólfæri reyndist einnig fast í hrauni. Þá leið mér ekki vel, — og var mér satt að segja ekki farið að lítast á blikuna. Byrjunin var ekki sigurvænleg.

Allt í einu losnaði færið. Auðfundið var, að stjórinn var með. Þegar stjórinn kom upp að borðinu, reyndust aðeins fyrir þrír krókar af austurálmu línunnar við stjórann. Þar með var 1/4 af lóðinni tapaður. En vesturhluti lóðarinnar var heill, og við grilltum 10 úti þegar stjórinn kom upp, ekki háfa, heldur stóra og fallega þorska. Þegar við höfðum innbyrt þá, sáust enn margir. Við drógum nú línuna viðstöðulaust til enda.

Á þessa 1200 öngla fengum við 21 þorsk í hlut og 2 ýsur. Skipt var í 24 hluti. Með 400 krókana, sem við misstum, höfðum við lent austur í hið stórgerða hraun, sem er norður af [[Mannklakkurinn dýpri|Dýpri-Mannklakknum]].

Það var kominn austan stormur, þegar við vorum búnir að draga. Vel lá á strákunum, þegar við höfðum seglbúið og [[Ingólfur VE|Ingólfur]] öslaði heim á leið með þennan góða afla. Byrjunin spáði góðu og strákarnir sungu og gerðu að gamni sínu.

Nú fengum við nóg af hrognum í næsta róður. En austanáttin, sem hófst með þessum degi, hamlaði róðrum til 17. s.m. Þann dag rérum við í annað sinn með lóðina, 1600 öngla. Beitan var orðin mjög úldin, enda engir frystiklefar þá til þess að geyma beitta línu í. Samt fiskuðum við vel; fengum 24 þorska í hlut og 4 ýsur. Í þessum róðri misstum við ekkert af lóðinni.

Við hættum að róa 6. maí. Höfðum þá farið 11 róðra með línuna og tapað samtals 800 önglum. En aflinn þennan stutta tíma nam samtals 5596 þorskum og 1416 ýsum. Auk þess fengum við talsvert af lúðu og skötu.

Frá því að við drógum út og til 10. apríl, að við hófum veiðarnar með línuna, vorum við búnir að fá 218 í hlut. Gera má ráð fyrir, að lítið hefði við það bætzt, eftir því sem aflinn reyndist hjá hinum, sem stunduðu eingöngu færi til vertíðarloka.
==Bjargi bylt af brautu==
''Leiðin rudd. Vertíðina 1898 notuðu öll skip í Eyjum línu. Beitan var gota og ljósabeita. Sumir skáru í vanþekkingu sinni alla krókana af línunni til þess að geta greitt hana.''

Næstu vertíð, 1898, voru öll skip, sem hér gengu þá á vetrarvertíðinni, útbúin með lóð. Á hverju bjóði voru 200 krókar og milli tauma 2—2½ alin (126—157 sm).

Átt-æringar réru með 8 bjóð og minni bátar svo minna að tiltölu. Beitan var jafnan þorsk- og ýsuhrogn, ef þau voru til, og svo ljósabeita með.

Bezta ljósabeitan þótti lúða og steinbítur.

Fyrst í stað voru margir lengi að beita, t.d. gamlir menn, og það bar við, að við hinir yngri, sem vorum orðnir vanir lóðinni, gerðum okkur gaman að sumum körlunum.

Ýmsar sagnir gengu um „samskipti“ sumra karlanna við línuna. — Tveir, sem beittu saman, höfðu fengið flækju. Þá stóðu þeir ráðalausir, þar til þeir sáu það ráðlegast að skera alla krókana af flækjunni.

Eitt sinn sá ég þrjá vera að beita sama bjóðið úr stokk. Einn tók krókana úr trénu, annar krækti beitunni á önglana og sá þriðji lagði þá niður í bjóðið. Dýr mundi hún þykja slík beitning í dagvinnu, hvað þá í næturvinnu!

Vertíðina 1898 var þó ekki einvörðungu notuð lóð. Svo var það einnig næstu vertíðir. Þessa vertíð (1898) hóf ég róðra 22. febr. Þá byrjaði ég með línuna og hélt því áfram, þangað til loðnan kom um miðjan marz. Þá tókum við handfærin um tíma.

Framan af vertíðinni var tregur fiskur á lóðina og þar af leiðandi lítið um hrogn til beitu.

Svona reyndist þetta næstu vertíðir, að fiskur var tregur á lóð, þangað til kom fram í apríl. Og eftir að loðnan tók að ganga, þýddi sjaldan að nota lóðina. Þetta mun þó hafa stafað af því fyrst og fremst, hversu einhæf beitan var. Hér vantaði síld, sérstaklega fyrri hluta vertíðar. Þó fiskaðist stundum mjög vel „Undir Sandi“ og á [[Állinn|Álnum]] á lóðina, eftir að loðna kom, en alltaf aflaðist þá meira af ýsu en þorksi.

Fyrstu vertíðarnar eftir að lóð varð hér aðalveiðarfærið, var helzta veiðisvæðið frá heimamiðum austur að Dýpri-Mannklakk og [[Leddarforir|Ledd]], sunnan við [[Rófa|Rófu ]] og allt austur að [[Sandahraun]]i.

Þegar fram í sótti og bátum fór fjölgandi, fór sjósókn vaxandi, — ekki sízt eftir að bátar með færeyska laginu voru almennt notaðir. Þá tóku menn að sækja suður að [[Súlnaskersklakkur|Súlnaskersklakk]]. Hann var um tíma mjög ásótt fiskimið línubáta.