„Ingimundur Sigurðsson (Draumbæ)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
 
Lína 27: Lína 27:
*Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
*Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
*Vestur-Skaftfellingar. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.}}
*Vestur-Skaftfellingar. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.}}
{{Æviskrár Víglundar Þórs}}
[[Flokkur: Bændur]]
[[Flokkur: Bændur]]
[[Flokkur: Fólk fætt á  19. öld]]
[[Flokkur: Fólk fætt á  19. öld]]

Núverandi breyting frá og með 15. ágúst 2015 kl. 19:51

Ingimundur Sigurðsson bóndi í Draumbæ fæddist 12. september 1835 í Neðri-Dal í Mýrdal og lést í Eyjum 12. mars 1894.
Faðir hans var Sigurður bóndi, síðast í Skarðshjáleigu í Mýrdal, f. 1787 á Eystri-Sólheimum þar, d. 29. maí 1852 í Skarðshjáleigu, Jónsson bónda og hreppstjóra, síðast í Neðri-Dal, f. í september 1762 á Hvoli í Fljótshverfi í V-Skaft., d. 20. maí 1830 í Neðri-Dal, Árnasonar bónda á Hvoli (flúði undan Eldinum í Kerlingardal í Mýrdal), f. 1724, d. fyrir 29. júlí 1784, Hávarðssonar, og konu Árna á Hvoli, Ragnhildar húsfreyju, f. 1725 í Kerlingardal, d. eftir 29. júlí 1784, Jónsdóttur.
Móðir Sigurðar í Skarðshjáleigu og kona Jóns í Neðri-Dal var Gróa húsfreyja, f. 1749 í Ytri-Skógum u. Eyjafjöllum, d. 29. september 1823 í Neðri-Dal, Jónsdóttir.

Móðir Ingimundar í Draumbæ og kona Sigurðar bónda í Skarðshjáleigu var Ingibjörg húsfreyja, f. 1801, d. 16. júní 1839, Jónsdóttir bónda, lengst á Brekkum í Mýrdal, f. 1759, Bjarnasonar bónda, f. 1725, Jónssonar.
Móðir Ingibjargar og kona Jóns Bjarnasonar var Ingveldur húsfreyja, f. 1771, Jónsdóttir bónda á Hvoli í Mýrdal, f. 1747, d. 26. ágúst 1819, Eyjólfssonar, og konu Jóns á Hvoli, Elínar húsfreyju, f. 1748, d. 29. september 1807, Sæmundsdóttur.

Ingimundur var hjá foreldrum sínum í Neðri-Dal til ársins 1837, hjá þeim í Skarðshjáleigu 1837-1852, vinnumaður þar hjá bróður sínum 1852-1854/5, vinnumaður á Mið-Hvoli í Mýrdal 1854/5-1859, á Kirkjubæjarklaustri 1859-1860.
Hann var kominn til Eyja 1860 og var vinnumaður í Garðinum þar 1860.
Ingimundur var orðinn bóndi í Draumbæ 1870 og enn 1890.
Hann lést 1894.

Kona Ingimundar Sigurðssonar var Katrín Þorleifsdóttir húsfreyja, f. 1838 á Tjörnum í Stóra-Dalssókn undir Eyjafjöllum, d. 13. febrúar 1901 í Eyjum.
Börn þeirra hér:
1. Þorleifur Sigurður Ingimundarson, f. 24. maí 1863 í Vanangri, d. 28. október 1863 „af langvarandi innvortis krankleika“.
2. Þorleifur Sigurður Ingimundarson, f. 28. ágúst 1864 í Vanangri, hrapaði til bana úr Kepptó í Stórhöfða í 4. júlí 1876.
3. Guðjón Ingimundarson, f. 30. júní 1867, d. 10. desember 1948. Hann fór til Vesturheims 1892. Hann var trésmíðameistari í Selkirk og síðar í Winnipeg. Börn með Guðbjörgu (líklega Ingimundson), f. í Vesturheimi: Ingibjörg, Kristmundur og Jónína. Hann tók upp eftirnafnið Ingimundson.
4. Sæmundur Ingimundarson bóndi í Draumbæ, f. 1. september 1870, d. 22. október 1942.
5. Þorsteinn Ingimundarson smiður, f. 23. ágúst 1874. Hann fór til Vesturheims 1900.
6. Sigurður Ingimundarson, f. 12. maí 1877, d. 8. júní 1933. Hann fór til Vesturheims 1902. Börn hans með Jónínu (líklega Ingimundson), f. í Vesturheimi: Sylvia Sigurveig og Ingimundur Karl. Hann tók upp eftirnafnið Ingimundson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.