„Málhildur Jónsdóttir (Kornhól)“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Málhildur Jónsdóttir (Kornhól)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 12: | Lína 12: | ||
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]]. | *Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]]. | ||
*Manntöl. | *Manntöl. | ||
*Prestþjónustubækur.}} | *Prestþjónustubækur.}}{{Æviskrár Víglundar Þórs}} | ||
[[Flokkur: Bústýrur]] | [[Flokkur: Bústýrur]] | ||
[[Flokkur: Vinnukonur]] | [[Flokkur: Vinnukonur]] |
Núverandi breyting frá og með 18. ágúst 2015 kl. 18:16
Málhildur Jónsdóttir vinnukona í Kornhól, f. 1778 í Klauf í Landeyjum.
Hún var 19 ára vinnukona í Klasbarðahjáleigu í V-Landeyjum 1801.
Málhildur var komin til Eyja 1816 og var þá bústýra í Svaðkoti hjá Einari Jónssyni ókvæntum bónda þar.
Hún var vinnukona í Kornhól við fæðingu Jóns 1820, á Vilborgarstöðum 1824 og fluttist þá að Gjábakka, 46 ára vinnukona. Hún finnst ekki í Eyjum síðan.
Málhildur var 55 ára vinnukona í Akurey í V-Landeyjum 1835, á Skinnum í Djúpárhreppi 1840, á Eystri-Hól þar 1845, niðursetningur í Stóra-Rimakoti (Borg) þar 1850, í Ölversholti í Holtahreppi 1855, í Þjóðólfshaga þar 1860.
Málhildur var ógift.
I. Barnsfaðir Málhildar var Einar Snorrason, þá vinnumaður á Búastöðum, f. 19. september 1794, d. 18. maí 1866.
Barn þeirra var
5. Jón Einarsson, f. 22. desember 1820, d. 31. desember 1820 úr ginklofa.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.