„Jón Símonarson (Gvendarhúsi)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Jón Símonarson''' bóndi í Gvendarhúsi fæddist 8. október 1810 í Álftarhóli í A-Landeyjum og lést 8. september 1861.<br> Foreldrar hans voru Símon Þorsteinsson, þ...) |
Ekkert breytingarágrip |
||
(1 millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum) | |||
Lína 18: | Lína 18: | ||
*Manntöl. | *Manntöl. | ||
*Prestþjónustubækur.}} | *Prestþjónustubækur.}} | ||
{{Æviskrár Víglundar Þórs}} | |||
[[Flokkur: Bændur]] | [[Flokkur: Bændur]] | ||
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]] | [[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]] | ||
[[Flokkur: Fólk dáið á 19. öld]] | [[Flokkur: Fólk dáið á 19. öld]] | ||
[[Flokkur: Íbúar í Gvendarhúsi]] | [[Flokkur: Íbúar í Gvendarhúsi]] |
Núverandi breyting frá og með 17. ágúst 2015 kl. 21:09
Jón Símonarson bóndi í Gvendarhúsi fæddist 8. október 1810 í Álftarhóli í A-Landeyjum og lést 8. september 1861.
Foreldrar hans voru Símon Þorsteinsson, þá bóndi í Álftarhóli, f. 1776, d. 29. ágúst 1847, og kona hans Sigríður Ólafsdóttir húsfreyja, f. 1775, d. 30. júní 1860.
Jón var með foreldrum sínum í Álftarhóli 1816.
Hann var kominn til Eyja 1834 og stóð fyrir búi í Gvendarhúsi. Þau Þuríður giftust í byrjun næsta árs og bjuggu síðan í Gvendarhúsi.
Við skráningu 1835 var Jón sonur hans kominn til þeirra, tveggja ára.
I. Barnsmóðir Jóns var Guðríður Þórarinsdóttir frá Kotvelli í Hvolhreppi, f. 19. apríl 1801, d. 10. apríl 1873. Hún var um stutt skeið (1835) vinnukona í Godthaab, en var vinnukona í Snotru í A-Landeyjum 1845.
Barn þeirra var
1. Jón Jónsson (Jón í Gvendarhúsi), bóndi í Gvendarhúsi, f. 30. október 1833, d. 13. júní 1919.
II. Eiginkona Jóns Símonarsonar, (7. janúar 1835), var Þuríður Erasmusdóttir húsfreyja í Gvendarhúsi, f. 1791, d. 25. febrúar 1866.
Þau voru barnlaus.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.