„Hásteinn“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
(Smáleiðr.) |
||
(1 millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum) | |||
Lína 1: | Lína 1: | ||
'''Hásteinn''' stendur neðan við [[Há|Austur-Há]]. Í daglegu tali er aðeins sagt Há en í raun eru þær þrjár; Há-Há, vestur af [[Dalfjall]]shrygg og gegnt [[Klif]]inu. Blá-Há, blágrýtishöfði austur úr Há-Há. Austur-Há, stendur næst byggðinni við Hástein. | '''Hásteinn''' stendur neðan við [[Há|Austur-Há]]. Í daglegu tali er aðeins sagt Há en í raun eru þær þrjár; Há-Há, vestur af [[Dalfjall]]shrygg og gegnt [[Klif]]inu. Blá-Há, blágrýtishöfði austur úr Há-Há. Austur-Há, stendur næst byggðinni við Hástein. | ||
Gömul þjóðtrú sagði að gerðust þrír atburðir samtímis í Vestmannaeyjum, myndu Tyrkir ræna þar á ný. Þessir atburðir voru: 1) Að byggð færi vestur fyrir Hástein. 2) Að vatnsbólið í Vilpu legðist af. 3) Að biskupssonur vígðist til prests í Vestmannaeyjum. | |||
Árið 1973 hafði tvennt af þessu gerst, byggðin var komin vestur fyrir Hástein og fyllt hafði verið upp í Vilpu. Og stutt var í þriðja atburðinn, þar sem séra Karl Sigurbjörnsson, biskupssonur, hafði sótt um prestsembætti í Eyjum. Raunar rændu Tyrkir ekki en annar atburður átti sér stað, eldgosið í Heimaey, og vildu einhverjir tengja það við hjátrúna gömlu. Í raun stenst það ekki þar sem séra Karl hafði ekki vígst hingað þegar gosið hófst. | |||
[[Flokkur:Örnefni]] | [[Flokkur:Örnefni]] |
Núverandi breyting frá og með 23. apríl 2006 kl. 10:46
Hásteinn stendur neðan við Austur-Há. Í daglegu tali er aðeins sagt Há en í raun eru þær þrjár; Há-Há, vestur af Dalfjallshrygg og gegnt Klifinu. Blá-Há, blágrýtishöfði austur úr Há-Há. Austur-Há, stendur næst byggðinni við Hástein.
Gömul þjóðtrú sagði að gerðust þrír atburðir samtímis í Vestmannaeyjum, myndu Tyrkir ræna þar á ný. Þessir atburðir voru: 1) Að byggð færi vestur fyrir Hástein. 2) Að vatnsbólið í Vilpu legðist af. 3) Að biskupssonur vígðist til prests í Vestmannaeyjum.
Árið 1973 hafði tvennt af þessu gerst, byggðin var komin vestur fyrir Hástein og fyllt hafði verið upp í Vilpu. Og stutt var í þriðja atburðinn, þar sem séra Karl Sigurbjörnsson, biskupssonur, hafði sótt um prestsembætti í Eyjum. Raunar rændu Tyrkir ekki en annar atburður átti sér stað, eldgosið í Heimaey, og vildu einhverjir tengja það við hjátrúna gömlu. Í raun stenst það ekki þar sem séra Karl hafði ekki vígst hingað þegar gosið hófst.