„Sölvatekja“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
(6 millibreytingar ekki sýndar frá 3 notendum) | |||
Lína 1: | Lína 1: | ||
Söl voru mikið nýtt til manneldis í Eyjum áður fyrri eins og raunar víða annars staðar á landinu. Best þykja þau söl sem | [[Mynd:DSCF9050.jpg|thumb|300px|right|Sölvatínsla á [[Sölvaflá]]. Þar er litadýrð mikil en gæta þarf varúðar því Sölvaflá er hál yfirferðar]] | ||
Söl voru mikið nýtt til manneldis í Eyjum áður fyrri eins og raunar víða annars staðar á landinu. Best þykja þau söl sem ferskt rennandi vatn hefur náð að leika um, enda eru þau ekki jafn sölt og hin sem eingöngu sjór rennur um. | |||
Í [[Vestmannaeyjar|Vestmannaeyjum]] er einn sá staður, þar sem svo háttar til. Nefnist hann [[Sölvaflá]] og er norðan í [[Stórhöfði|Stórhöfða]]. Vatn drýpur úr slútandi berginu ofan við flána og „útvatnast“ því sölin á flánni. | Í [[Vestmannaeyjar|Vestmannaeyjum]] er einn sá staður, þar sem svo háttar til. Nefnist hann [[Sölvaflá]] og er norðan í [[Stórhöfði|Stórhöfða]]. Vatn drýpur úr slútandi berginu ofan við flána og „útvatnast“ því sölin á flánni. | ||
Áður | Áður fyrr, þegar bújarðir í Vestmannaeyjum skiptu milli sín þeim hlunnindum sem var að hafa, fóru [[Ofanbyggjarar]] ævinlega á Sölvaflá í ágústmánuði ár hvert, en Ofanbyggjarar nefnast þeir sem búa „Fyrir ofan hraun“. | ||
Fara varð á báti til að komast á flána og auðvitað farið á fjörunni. Sölin voru síðan tínd í strigapoka og haldið heim þegar falla tók að á ný. Þá voru [[söl]]in vind- og sólþurrkuð og síðan pressuð. Söl þóttu og þykja enn afbragsfæða enda eru þau rík af járni. | |||
[[Mynd:DSCF9058.jpg|thumb|150px|left|Söl, Palmaria palmata]] | |||
Grautur var víða gerður úr sölvum. Í graut með haframjöli var haft jafn mikið af hvoru, haframjöli og sölvum. En algengara var þó að hafa söl til að drýgja mjöl í brauð en kökur. | |||
Þegar söl voru notuð í brauð og kökur voru sölin soðin í vatni og síðan söxuð smátt og hnoðuð þannig saman við brauðið. Nota mátti meira en helming af sölvum á móti mjöli. | |||
Nú þegar veldi jarðabænda er úr sögunni notar almenningur sér þessi hlunnindi norðan í Höfðanum til ánægju og heilsubótar. | |||
[[Flokkur:Náttúra]] | |||
[[Flokkur:Um Vestmannaeyjar]] |
Núverandi breyting frá og með 14. júní 2006 kl. 08:29
Söl voru mikið nýtt til manneldis í Eyjum áður fyrri eins og raunar víða annars staðar á landinu. Best þykja þau söl sem ferskt rennandi vatn hefur náð að leika um, enda eru þau ekki jafn sölt og hin sem eingöngu sjór rennur um.
Í Vestmannaeyjum er einn sá staður, þar sem svo háttar til. Nefnist hann Sölvaflá og er norðan í Stórhöfða. Vatn drýpur úr slútandi berginu ofan við flána og „útvatnast“ því sölin á flánni.
Áður fyrr, þegar bújarðir í Vestmannaeyjum skiptu milli sín þeim hlunnindum sem var að hafa, fóru Ofanbyggjarar ævinlega á Sölvaflá í ágústmánuði ár hvert, en Ofanbyggjarar nefnast þeir sem búa „Fyrir ofan hraun“.
Fara varð á báti til að komast á flána og auðvitað farið á fjörunni. Sölin voru síðan tínd í strigapoka og haldið heim þegar falla tók að á ný. Þá voru sölin vind- og sólþurrkuð og síðan pressuð. Söl þóttu og þykja enn afbragsfæða enda eru þau rík af járni.
Grautur var víða gerður úr sölvum. Í graut með haframjöli var haft jafn mikið af hvoru, haframjöli og sölvum. En algengara var þó að hafa söl til að drýgja mjöl í brauð en kökur. Þegar söl voru notuð í brauð og kökur voru sölin soðin í vatni og síðan söxuð smátt og hnoðuð þannig saman við brauðið. Nota mátti meira en helming af sölvum á móti mjöli.
Nú þegar veldi jarðabænda er úr sögunni notar almenningur sér þessi hlunnindi norðan í Höfðanum til ánægju og heilsubótar.