„Blik 1939, 5. tbl./Blik“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
(1 millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum) | |||
Lína 3: | Lína 3: | ||
::::::[[Loftur Guðmundsson|Loftur Guðmundsson]], kennari: | :::::::<big>[[Loftur Guðmundsson|Loftur Guðmundsson]], kennari:</big> | ||
:::::::::'''Blik.''' | |||
:::::::::<big><big><big><big>'''Blik.'''</big></big></big> | |||
::::::Æska og blik . . . Þessi björtu orð | ::::::Æska og blik . . . Þessi björtu orð |
Núverandi breyting frá og með 24. maí 2010 kl. 16:01
- Loftur Guðmundsson, kennari:
- Blik.
- Æska og blik . . . Þessi björtu orð
- slá bjarma inn í hvers manns sál.
- Þau hljóma eins og vorsvana vængjatök.
- Þau verma eins og tendrað bál.
- Æskan, — með blikandi bros í augum,
- bjart, eins og sólroðað stál.
- Æska með draumblik í sál og sinni
- og seiðandi, djarfar þrár.
- Æska með leifturblik ótamdrar orku
- og órættar framtíðarspár.
- Þér ögrar til víðfeðmra vængjataka
- vorhiminn draumablár.
- Æska, sem horfir með haukfránum augum
- að hafsbrúnar yztu rönd,
- og sérð, hvar í heillandi hyllingafirð
- rís heiðljóma vafin strönd.
- Við blik frá nýkveiktum bálum dagsins
- þar birtast þín óskalönd.
- Æska, það hlutverk er heilagt og stórt,
- sem vor heimur þér leggur í skaut.
- Að skapa úr arfi frá feigri fortíð
- framtíð, á vorgeislabraut.
- Að lyfta þar fána frelsis og dyggða,
- sem föllnu hetjurnar þraut.