„Blik 1939, 4. tbl./Kveðja“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip

(1 millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum)
Lína 11: Lína 11:
::::::Ég átti viðkvæmar vonir,
sem vermdust í hjartans glóð.
Til himins stigu í hljóðri bæn
mín helgu draumaljóð.
Og loks er kominn sá langþráði dagur,
er legg ég á höf með bros á vörum

::::::Ég átti viðkvæmar vonir,
sem vermdust í hjartans glóð.
Til himins stigu í hljóðri bæn
mín helgu draumaljóð.
Og loks er kominn sá langþráði dagur,
er legg ég á höf með bros á vörum

::::::—og stefni í fjarskann — einn í förum.

::::::—og stefni í fjarskann — einn í förum.

::::::::''[[Helgi Sæmundsson|H. Sæmundsson.]]''
::::::::''[[Helgi Sæmundsson (rithöfundur)|H. Sæmundsson.]]''

{{Blik}}
{{Blik}}

Núverandi breyting frá og með 29. júní 2023 kl. 19:32

Efnisyfirlit 1939

Kveðja.
Sólskin um sund og voga.
Sumar um land og haf.
Draumlyndur þeyrinn þýtur,
þenur hið hvíta traf.
Lygnar öldur bátinn bera
burt frá strönd.
Í fjarska djúpið dylur
mín draumalönd.
Blás þú sólhýri sunnanvindur
í seglin þönd.

Ég átti viðkvæmar vonir,
sem vermdust í hjartans glóð.
Til himins stigu í hljóðri bæn
mín helgu draumaljóð.
Og loks er kominn sá langþráði dagur,
er legg ég á höf með bros á vörum
—og stefni í fjarskann — einn í förum.
H. Sæmundsson.