„Blik 1955/Kveðja til Gagnfræðaskólans“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
m (Verndaði „Blik 1955/Kveðja til Gagnfræðaskólans“ [edit=sysop:move=sysop]) |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 4: | Lína 4: | ||
::::::::::KVEÐJA | |||
:::::::til Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum

til Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum
| :::::::::1. des. 1954 | ||
1. des. 1954 | ::::::::frá TRAUSTA ÞORSTEINSSYNI | ||

Lína 54: | Lína 55: | ||
Í aprílmánuði í fyrra, er nemendur fengu tóm til vinnu við framleiðslustörfin í bænum, slasaðist Trausti, og hefir hann átt í þeim meiðslum síðan.
| Í aprílmánuði í fyrra, er nemendur fengu tóm til vinnu við framleiðslustörfin í bænum, slasaðist Trausti, og hefir hann átt í þeim meiðslum síðan.

Skólastjóri og kennarar Gagnfræðaskólans senda Trausta alúðarfyllstu þakkir fyrir hlýju kveðjuna og óska þess jafnframt, að Trausti geti sem fyrst setzt á námsbekk í skólanum aftur.
| Skólastjóri og kennarar Gagnfræðaskólans senda Trausta alúðarfyllstu þakkir fyrir hlýju kveðjuna og óska þess jafnframt, að Trausti geti sem fyrst setzt á námsbekk í skólanum aftur.

Bezta eign hvers skóla eru góðir nemendur. Trausti var einn af þeim, hlýr og háttprúður. | |||
{{Blik}} | {{Blik}} |
Núverandi breyting frá og með 21. júní 2010 kl. 16:30
- KVEÐJA
- til Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum
- 1. des. 1954
- frá TRAUSTA ÞORSTEINSSYNI
- til Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum
- Leitar hugur óðfús einatt
- ykkar til, en þó í dag
- flýtir hann sér hraðar, hraðar
- heiman, því með gleðibrag
- veit, að öll þið safnizt saman
- til söngs og leikja, hver og einn;
- gleðielda kveikja, kynda
- kennari og lærisveinn.
- Áður fyrri ykkar meðal
- átti ég náms- og gleðistund,
- sakna nú að orka eigi
- að eiga þátt í slíkum fund.
- Bjarmar þó af björtum morgni
- batans, senn mun eflast þor.
- Feginn væri, ef gæti gengið
- gleðinnar og námsins spor.
- Sendi ég ykkur öllum, öllum
- óska minna blómavönd;
- lítil reynist orðsins angan
- æskumanns, sem reyra bönd.
- En þessi litli ljóðavöndur
- með lítinn ilm, — af skrúði fár,
- þakkir flytur ykkur einnig
- öllum fyrir liðin ár.
- Megi þessi stofnun standa
- styrkum fótum, björt og hrein,
- veita gnægð af góðum ráðum,
- göfga, þroska mey og svein,
- Heill í dag og heill í framtíð,
- heill á náms og gleðistund;
- menntakyndill megi bjartur
- mörgum lýsa á gæfufund.
- Björk
Trausti Þorsteinsson Steinssonar vélsmíðameistara hafði stundað nám í skólanum tvo vetur. Hugðist hann ljúka 2. bekkjar prófi í fyrra vor.
Í aprílmánuði í fyrra, er nemendur fengu tóm til vinnu við framleiðslustörfin í bænum, slasaðist Trausti, og hefir hann átt í þeim meiðslum síðan.
Skólastjóri og kennarar Gagnfræðaskólans senda Trausta alúðarfyllstu þakkir fyrir hlýju kveðjuna og óska þess jafnframt, að Trausti geti sem fyrst setzt á námsbekk í skólanum aftur.
Bezta eign hvers skóla eru góðir nemendur. Trausti var einn af þeim, hlýr og háttprúður.