„Blik 1960/Herjólfi fagnað“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
m (Verndaði „Blik 1960/Herjólfi fagnað“ [edit=sysop:move=sysop]) |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 5: | Lína 5: | ||
''Herjólfi fagnað'' | |||

[[Mynd: 1960, bls. 200.jpg|thumb|600px|''Vélskipið Herjólfur.'']]Laugardaginn 12. des. 1959 lagðist „Vestmannaeyjaskipið“ | [[Mynd: 1960, bls. 200.jpg|thumb|600px|''Vélskipið Herjólfur.'']]Laugardaginn 12. des. 1959 lagðist „Vestmannaeyjaskipið“ Herjólfur að bryggju hér í Eyjum fyrsta sinni. Skipið kom frá Hollandi, þar sem það var byggt, með viðkomu í Leith. Heimahöfn þess er Vestmannaeyjar. Í tilefni þessa merkisatburðar í samgöngumálum kaupstaðarins, hafði [[Sigurgeir Kristjánsson]], lögregluþjónn, ort eftirfarandi kvæði, sem var flutt á Básaskersbryggjunni, er skipið lagðist þar að. | ||
Herjólfur að bryggju hér í Eyjum fyrsta sinni. Skipið kom frá Hollandi, þar sem það var byggt, með viðkomu í Leith. Heimahöfn þess er Vestmannaeyjar. Í tilefni þessa merkisatburðar í samgöngumálum kaupstaðarins, hafði [[Sigurgeir Kristjánsson]], lögregluþjónn, ort eftirfarandi kvæði, sem var flutt á Básaskersbryggjunni, er skipið lagðist þar að. | |||
Lína 23: | Lína 24: | ||
::''Þeir vissu það áður, sem ýttu úr vör
| ::''Þeir vissu það áður, sem ýttu úr vör

::''við útsker hjá rjúkandi hrönnum,
| ::''við útsker hjá rjúkandi hrönnum,

::''ef | ::''ef syrti í álinn, þá seinkaði för

::''hjá sjóhröktum erfiðismönnum.
| ::''hjá sjóhröktum erfiðismönnum.

::''það var eins og brimhljóðið boðaði grand,
| ::''það var eins og brimhljóðið boðaði grand,

Núverandi breyting frá og með 14. ágúst 2010 kl. 17:38
Laugardaginn 12. des. 1959 lagðist „Vestmannaeyjaskipið“ Herjólfur að bryggju hér í Eyjum fyrsta sinni. Skipið kom frá Hollandi, þar sem það var byggt, með viðkomu í Leith. Heimahöfn þess er Vestmannaeyjar. Í tilefni þessa merkisatburðar í samgöngumálum kaupstaðarins, hafði Sigurgeir Kristjánsson, lögregluþjónn, ort eftirfarandi kvæði, sem var flutt á Básaskersbryggjunni, er skipið lagðist þar að.
- Við bjóðum þig velkominn, Herjólfur, heim
- til hafnar við norðlægar slóðir.
- Við biðum þín lengi, og þökk veri þeim,
- sem þér voru hollir og góðir.
- Þú komst, þó að nótt væri niðdimm og löng,
- og nú skal þér fagnað með ræðum og söng.
- Við bjóðum þig velkominn, Herjólfur, heim
- Þeir vissu það áður, sem ýttu úr vör
- við útsker hjá rjúkandi hrönnum,
- ef syrti í álinn, þá seinkaði för
- hjá sjóhröktum erfiðismönnum.
- það var eins og brimhljóðið boðaði grand,
- er boðarnir féllu við Eyjar og sand.
- Þeir vissu það áður, sem ýttu úr vör
- Loks mótaði þekkingin tækninnar tök
- á tímum, sem við stöndum nærri.
- Þá rættust þeir draumar, sem vörðust í vök,
- og víst eru sigrarnir stærri!
- Í dag birtist Herjólfur, skínandi skeið,
- vort skip, er gegn ólgunni klýfur sér leið.
- Loks mótaði þekkingin tækninnar tök
- Fylgi þér, Herjólfur, hamingjudís
- um hafið á framtíðarleiðum.
- Þín sigling sé örugg og vegleg og vís,
- þó vindarnir blási í reiðum.
- Svo eflir þú tengslin við Eyjar og land,
- þótt oft falli boði við Landeyjasand.
- Fylgi þér, Herjólfur, hamingjudís