„Sigfinnur Sigurðsson“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
(7 millibreytingar ekki sýndar frá 6 notendum) | |||
Lína 1: | Lína 1: | ||
Sigfinnur Sigurðsson er fæddur 16. febrúar 1937 í Stykkishólmi. Foreldrar hans voru Sigurður Skúlason verslunarmaður í Stykkishólmi og Soffía Sigfinnsdóttir. | Sigfinnur Sigurðsson er fæddur 16. febrúar 1937 í Stykkishólmi. Sigfinnur lést árið 2003. Foreldrar hans voru Sigurður Skúlason verslunarmaður í Stykkishólmi og Soffía Sigfinnsdóttir. Kona hans var Helga Sveinsdóttir frá Þykkvabæ og áttu þau þrjú börn. | ||
Sigfinnur | Hann varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1957 og í framhaldi af því cand. phil. frá Háskóla Íslands árið 1958. Sigfinnur öðlaðist hagfræðipróf árið 1963 frá háskóla í Marburg Lahn og Köln. Prófritgerð Sigfinns var um utanríkisverslun Íslendinga árið 1963. Einnig skrifaði Sigfinnur um Skipulag sjávarkauptúna á Íslandi (sem var verðlaunaritgerð Skipulagsstjórnar ríksins 1972). | ||
Sigfinnur starfaði við ýmiss konar opinber störf, m.a. við uppbyggingu nýs fasteignamats ríkisins, var borgarhagfræðingur og var framkvæmdastjóri Sambands sunnlenskra sveitarfélaga frá 1972-75. Þá tók hann við embætti [[bæjarstjórn|bæjarstjóra]] Vestmannaeyja og gegndi því í tvö ár, á árunum 1975-1976. | |||
Sigfinnur var hagfræðingur Verslunarmannafélags Reykjavíkur frá 1979. | |||
{{Heimildir| | |||
* [[Haraldur Guðnason]]. ''Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár'', II. bindi. Reykjavík, Vestmannaeyjabær, 1991. | |||
Haraldur Guðnason | }} | ||
[[Flokkur:Bæjarstjórar]] | [[Flokkur:Bæjarstjórar]] | ||
[[Flokkur:Fólk fætt á 20. öld]] | |||
[[Flokkur:Fólk dáið á 21. öld]] |
Núverandi breyting frá og með 28. júní 2007 kl. 11:13
Sigfinnur Sigurðsson er fæddur 16. febrúar 1937 í Stykkishólmi. Sigfinnur lést árið 2003. Foreldrar hans voru Sigurður Skúlason verslunarmaður í Stykkishólmi og Soffía Sigfinnsdóttir. Kona hans var Helga Sveinsdóttir frá Þykkvabæ og áttu þau þrjú börn.
Hann varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1957 og í framhaldi af því cand. phil. frá Háskóla Íslands árið 1958. Sigfinnur öðlaðist hagfræðipróf árið 1963 frá háskóla í Marburg Lahn og Köln. Prófritgerð Sigfinns var um utanríkisverslun Íslendinga árið 1963. Einnig skrifaði Sigfinnur um Skipulag sjávarkauptúna á Íslandi (sem var verðlaunaritgerð Skipulagsstjórnar ríksins 1972).
Sigfinnur starfaði við ýmiss konar opinber störf, m.a. við uppbyggingu nýs fasteignamats ríkisins, var borgarhagfræðingur og var framkvæmdastjóri Sambands sunnlenskra sveitarfélaga frá 1972-75. Þá tók hann við embætti bæjarstjóra Vestmannaeyja og gegndi því í tvö ár, á árunum 1975-1976.
Sigfinnur var hagfræðingur Verslunarmannafélags Reykjavíkur frá 1979.
Heimildir
- Haraldur Guðnason. Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár, II. bindi. Reykjavík, Vestmannaeyjabær, 1991.