„Sigurður Jónsson (Böðvarsdal)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Sigurður Jónsson''' frá Böðvarsdal í Vopnafirði, skrifstofumaður fæddist 29. nóvember 1924 og lést 24. september 2005.<br> Foreldrar hans voru Jón Eiríksson kennari, skólastjóri, bóndi, f. 28. janúar 1891, d. 20. apríl 1979, og kona hans Lára Runólfsdóttir húsfreyja, f. 13. maí 1894, d. 4. nóvember 1985. Sigurður varð stúdent í Menntaskólanum á Akureyri 1944, stundaði nám í verkfræði í Háskóla Íslands 1944-1945.<br> Hann vann skrifstofu...)
 
m (Verndaði „Sigurður Jónsson (Böðvarsdal)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
 
(Enginn munur)

Núverandi breyting frá og með 10. apríl 2023 kl. 15:16

Sigurður Jónsson frá Böðvarsdal í Vopnafirði, skrifstofumaður fæddist 29. nóvember 1924 og lést 24. september 2005.
Foreldrar hans voru Jón Eiríksson kennari, skólastjóri, bóndi, f. 28. janúar 1891, d. 20. apríl 1979, og kona hans Lára Runólfsdóttir húsfreyja, f. 13. maí 1894, d. 4. nóvember 1985.

Sigurður varð stúdent í Menntaskólanum á Akureyri 1944, stundaði nám í verkfræði í Háskóla Íslands 1944-1945.
Hann vann skrifstofustörf hjá Reykjavíkurborg 1946-1948, hjá Vestmannaeyjabæ 1949-1954 og hjá Tanga á Vopnafirði frá 1957 til starfsloka vegna aldurs.
Sigurður bjó við Strandveg 42.
Sigurður var ókvæntur og barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.