„Una Þóra Ingimarsdóttir“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Una Þóra Ingimarsdóttir''' frá Akureyri, húsfreyja, skrifstofumaður fæddist 17. apríl 1962.
Foreldrar hennar voru Ingimar Jón Þorkelsson frá Miðsitju í Blönduhlí...)

Ekkert breytingarágrip

(1 millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum)
Lína 13: Lína 13:
1. [[Tinna Ósk Þórsdóttir]] starfsmaður á Heilbrigðisstofnuninni, f. 18. desember 1990. Maður hennar  [[Valur Smári Heimisson]].

1. [[Tinna Ósk Þórsdóttir]] starfsmaður á Heilbrigðisstofnuninni, f. 18. desember 1990. Maður hennar  [[Valur Smári Heimisson]].

2. [[Alma Rós Þórsdóttir]] starfsmaður á skrifstofu ferjunnar [[Herjólfur|Herjólfs]], f. 30. júní 1995. Sambúðarmaður hennar [[Birkir Hlynsson]].

2. [[Alma Rós Þórsdóttir]] starfsmaður á skrifstofu ferjunnar [[Herjólfur|Herjólfs]], f. 30. júní 1995. Sambúðarmaður hennar [[Birkir Hlynsson]].

3. [[Þórdís Eva Þórsdóttir]] starfsmaður á leikskóla, nemandi, f. 30. mars 1999. Sambúðarmaður [[Hafsteinn Valdimarsson]].
3. [[Þórdís Eva Þórsdóttir]] starfsmaður á leikskóla, nemandi, f. 30. mars 1999. Sambúðarmaður [[Hafsteinn Gísli Valdimarsson]].
{{Heimildir|
{{Heimildir|
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].

Núverandi breyting frá og með 25. október 2024 kl. 13:23

Una Þóra Ingimarsdóttir frá Akureyri, húsfreyja, skrifstofumaður fæddist 17. apríl 1962.
Foreldrar hennar voru Ingimar Jón Þorkelsson frá Miðsitju í Blönduhlíð í Skagafirði, rafvélavirkjameistari á Akureyri, f. 7. febrúar 1930 í Litla-Dal í Blönduhlíð, d. 4. júní 1996, og Ósk Óskarsdóttir frá Akureyri, húsfreyja, f. 24. júní 1935, d. 30. ágúst 2020.

Una var með foreldrum sínum í æsku.
Hún útskrifaðist í gagnfræðaskólanum á Akureyri, lauk tveggja ára verslunarnámi þar. Hún stundaði nám í Ármúlaskólanum í Reykjavík, en lauk stúdentsprófi í Framhaldsskólanum í Eyjum.
Una flutti til Reykjavíkur 18 ára, var um skeið í Ármúlaskóla, vann síðan skrifstofustörf.
Þau Þór hófu búskap í Hafnarfirði, fluttu til Eyja 1989.
Þau stofnuðu byggingafyrirtækið 2-Þ í Eyjum og reka það.
Þau giftu sig 1994, eignuðust þrjú börn. Þau hafa búið á Ásavegi 23.

I. Maður Unu Þóru, (25. júní 1994), er Þór Engilbertsson húsasmíðameistari, f. 25. apríl 1954 í Hljómskálanum við Hvítingaveg 10.
Börn þeirra eru:
1. Tinna Ósk Þórsdóttir starfsmaður á Heilbrigðisstofnuninni, f. 18. desember 1990. Maður hennar Valur Smári Heimisson.
2. Alma Rós Þórsdóttir starfsmaður á skrifstofu ferjunnar Herjólfs, f. 30. júní 1995. Sambúðarmaður hennar Birkir Hlynsson.
3. Þórdís Eva Þórsdóttir starfsmaður á leikskóla, nemandi, f. 30. mars 1999. Sambúðarmaður Hafsteinn Gísli Valdimarsson.

Heimildir

Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.