„Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1979/Maðurinn og hafið“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip

Lína 1: Lína 1:
'''Maðurinn og hafið 1978'''

'''Maðurinn og hafið 1978'''

[[Mynd:Screen Shot 2017-06-29 at 11.26.32.png|300px|thumb|Mikið var að gera suður við Höfðavík á laugardeginum, þegar siglt var á smábátum að skoða Fjósin.]]
[[Mynd:Screen Shot 2017-06-29 at 11.27.36.png|300px|thumb|Að loknu sigi ásamt læriföðurnum, Hlöðve Johnsen.]]
[[Mynd:Screen Shot 2017-06-29 at 11.28.07.png|300px|thumb|Leiðsögumennirnir í ferðinni með Herjólfi kringum Eyjar, þeir Ási í Bæ og Árni Johnsen sáu um að engum leiddist um borð og tóku lagið milli atriða.]]
Um mánaðarmótin júní-júlí í sumar voru haldnir í Eyjum menningardagar sjómanna og fiskvinnslufólks að tilstuðlan Menningar og fræðslustofnunar alþýðu. Var mikill undirbúningur vegna þessara daga og lögðust margir á eitt um að gera framkvæmd þeirra sem best úr garði.

Framkvæmdarstjóri þessara daga var Vilborg Harðardóttir, blaðamaður og henni til aðstoðar fjölmargir aðilar frá hinum ýmsu félagasamtökum í bænum.
Framkvæmdarstjóri þessara daga var Vilborg Harðardóttir, blaðamaður og henni til aðstoðar fjölmargir aðilar frá hinum ýmsu félagasamtökum í bænum.
Lína 13: Lína 15:
Ýmislegt var fleira til skemmtunar þessa daga, en hér hefur aðeins verið stiklað á því stærsta.

Ýmislegt var fleira til skemmtunar þessa daga, en hér hefur aðeins verið stiklað á því stærsta.

Mikill fjöldi gesta sótti þessa daga bæði erlendir og innlendir og þóttu hátíðarhöldin takast með eindæmum vel enda var veður hið besta alla dagana. Eiga allir þeir, sem þarna lögðu hönd á plóg hinar bestu þakkir skildar fyrir þetta ágæta framlag til menningarauka hinna vinnandi stétta í Vestmannaeyjum.

[[Mynd:Screen Shot 2017-06-29 at 11.27.49.png|500px|center|thumb|Verðlaunahafar. Sigurdís Arnardóttir, sem hlaut verðlaun í teiknimyndasamkeppni og Páll V Kristinsson, sem hlaut verðlaun fyrir bestu ritgerð um efnið Maðurinn og hafið. Sigurgeir Jónsson, æskulýðsfulltrúi afhenti verðlaunin, tvö forkunnarfalleg skip, sem Arnar Ingólfsson smíðaði úr járni. Sigurdís er dóttir Arnars og má segja, að eplið falli ekki langt frá eikinni í listrænum vinnubrögðum.]]
{{Sjómannadagsblað Vestmannaeyja}}
{{Sjómannadagsblað Vestmannaeyja}}

Núverandi breyting frá og með 29. júní 2017 kl. 11:41

Maðurinn og hafið 1978

Mikið var að gera suður við Höfðavík á laugardeginum, þegar siglt var á smábátum að skoða Fjósin.
Að loknu sigi ásamt læriföðurnum, Hlöðve Johnsen.
Leiðsögumennirnir í ferðinni með Herjólfi kringum Eyjar, þeir Ási í Bæ og Árni Johnsen sáu um að engum leiddist um borð og tóku lagið milli atriða.

Um mánaðarmótin júní-júlí í sumar voru haldnir í Eyjum menningardagar sjómanna og fiskvinnslufólks að tilstuðlan Menningar og fræðslustofnunar alþýðu. Var mikill undirbúningur vegna þessara daga og lögðust margir á eitt um að gera framkvæmd þeirra sem best úr garði.
Framkvæmdarstjóri þessara daga var Vilborg Harðardóttir, blaðamaður og henni til aðstoðar fjölmargir aðilar frá hinum ýmsu félagasamtökum í bænum. Setningarathöfn fór fram í íþróttamiðstöðinni að kvöldi fimmtudagsins 29. júní, en sama dag voru opnaðar ýmsar sýningar, sem tengdar voru efni daganna. Samsýning myndlistarmanna í Vestmannaeyjum var í Akógeshúsinu, sérstök sýning var í Byggðarsafninu og Bókasafnið var með sýningu á bókum eftir Vestmannaeyinga og öðrum sem tengjast Eyjunum. Í Stýrimannaskólanum var sýning á tækjum og öðru, sem skólann varðar. Í Félagsheimilinu var sýning á myndum, sem nemendur Barnaskólans höfðu unnið í tilefni þessara daga og einnig var efnt til ritgerðarsamkeppni meðal nemenda. Í Félagsheimilinu voru einnig kvikmyndasýningar alla dagana, þar sem sýndar voru kvikmyndir frá Eyjum. Til stóð að setja upp utanhúss mikla sýningu á veiðarfærum, en frá því varð að hverfa vegna kostnaðar.
Björgunarfélagið, slökkviliðið og hjálparsveitin sýndu listir sínar á Eiðinu, undir Skiphellum sýndu ungir piltar sig og sprang ásamt fleiri kúnstum og bjargsig var sýnt í Fiskhellum.
Flotbryggja var sett upp í Víkinni og þaðan siglt með fólk á gúmbátum að skoða Fjósin.
Ráðstefna var haldin þessa daga í Alþýðuhúsinu og bar hún yfirskriftina Rétturinn til atvinnu- Rétturinn til menningarlífs. Þá var það einn þátturinn í hátíðarhöldunum, að listamenn sóttu heim verkafólk í Fiskvinnslustöðvunum og léku og sungu í kaffitímum.
Leikflokkurinn Gríma frá Færeyjum hafði tvær sýningar í Félagsheimilinu á leikritinu Kvæðið um Kópakonuna og sömuleiðis hafði Leikbrúðuland sýningar þar fyrir yngstu kynslóðina.
Verkakvennafélagið Snót var með dagskrá um störf konunnar, og blönduð dagskrá var í Samkomuhúsinu. Að sjálfsögðu voru dansleikir haldnir, bæði í Alþýðuhúsinu og Samkomuhúsinu þessa daga.

Herjólfur sigldi kringum Eyjar með fólk og voru þar leiðsögumenn þeir Ási í Bæ og Árni Johnsen.
Ýmislegt var fleira til skemmtunar þessa daga, en hér hefur aðeins verið stiklað á því stærsta.
Mikill fjöldi gesta sótti þessa daga bæði erlendir og innlendir og þóttu hátíðarhöldin takast með eindæmum vel enda var veður hið besta alla dagana. Eiga allir þeir, sem þarna lögðu hönd á plóg hinar bestu þakkir skildar fyrir þetta ágæta framlag til menningarauka hinna vinnandi stétta í Vestmannaeyjum.

Verðlaunahafar. Sigurdís Arnardóttir, sem hlaut verðlaun í teiknimyndasamkeppni og Páll V Kristinsson, sem hlaut verðlaun fyrir bestu ritgerð um efnið Maðurinn og hafið. Sigurgeir Jónsson, æskulýðsfulltrúi afhenti verðlaunin, tvö forkunnarfalleg skip, sem Arnar Ingólfsson smíðaði úr járni. Sigurdís er dóttir Arnars og má segja, að eplið falli ekki langt frá eikinni í listrænum vinnubrögðum.