„Helgi Ólafsson (Löndum)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Helgi Ólafsson''' úr Mýrdal, vinnumaður á Löndum, síðar í Vesturheimi fæddist 13. nóvember 1858 á Eystri-Sólheimum í Mýrdal.<br> Foreldrar hans voru Ólafur Jón...) |
m (Verndaði „Helgi Ólafsson (Löndum)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 28. janúar 2016 kl. 21:05
Helgi Ólafsson úr Mýrdal, vinnumaður á Löndum, síðar í Vesturheimi fæddist 13. nóvember 1858 á Eystri-Sólheimum í Mýrdal.
Foreldrar hans voru Ólafur Jónsson, þá vinnumaður á Felli í Mýrdal, síðar bóndi á Brekkum þar, f. 25. mars 1836 u. Eyjafjöllum, drukknaði í Dyrhólahöfn 20. mars 1871, og Helga Sveinsdóttir vinnukona, f. 27. nóvember 1822 á Lækjarbakka í Mýrdal, d. 19. október 1910 í Hjörleifshöfða.
Hálfsystir Helga, samfeðra, var
1. Ólafía Ólafsdóttir húsfreyja á Hlíðarenda, f. 15. ágúst 1871, d. 27. desember 1952.
Helgi var með móður sinni á Eystri-Sólheimum til 1860, á Brekkum í Mýrdal 1860-1868, var ómagi í Sólheimakoti þar 1868-1872, á Kaldrananesi 1872, vinnumaður í Skammadal þar 1880, á Dyrhólum þar 1887.
Helgi fluttist úr Mýrdal að Löndum 1887.
Hann fluttist til Vesturheims 1890 og Anna 1891.
Þau Anna giftu sig, bjuggu í Spanish Fork í 11 ár, en fluttust þá til Blaine í
Washington-fylki, keyptu þar land utan við bæinn og stunduðu landbúnað.
Helgi lést 1915.
Kona Helga var Anna Eyjólfsdóttir, f. um 1854 í Holtssókn.
Börn þeirra hér ,,talin myndarlegt og bezta fólk“:
1. Anna Helgadóttir.
2. Þorsteinn Helgason.
3. Jón Helgason.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur
- Saga Íslendinga í Vesturheimi I-V. Þorsteinn Þ. Þorsteinsson, Tryggvi J. Oleson. Winnipeg: Þjóðræknisfélag Íslendinga í Vesturheimi: Menningarsjóður 1940-1953.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.