„Þjóðhátíðarlag (1977)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
(2 millibreytingar ekki sýndar frá 1 notanda) | |||
Lína 1: | Lína 1: | ||
Árið 1977 voru tvö þjóðhátíðarlög valin, til | {{Þjóðhátíðarlagið|1977|[[Vornótt í Eyjum|1976]]|[[Á þjóðhátíð|1978]]}} | ||
Árið 1977 voru tvö þjóðhátíðarlög valin, til að fagna því að [[þjóðhátíðin]] var aftur komin í [[Herjólfsdalur|Herjólfsdal]] eftir fjögurra ára dvöl á [[Breiðibakki|Breiðabakka]] eftir [[Heimaeyjargosið|eldgosið]]. | |||
== Dagurinn fagri og dætur hans == | == Dagurinn fagri og dætur hans == | ||
Lína 48: | Lína 50: | ||
:''og ævintýrin nýjum perlum skarta,'' | :''og ævintýrin nýjum perlum skarta,'' | ||
:''því hér er ekkert til sem mær ei má'' | :''því hér er ekkert til sem mær ei má'' | ||
:''ef maður elskar | :''ef maður elskar hana af hreinu hjarta.'' | ||
::Lag og ljóð: [[Ási í Bæ]]. | ::Lag og ljóð: [[Ási í Bæ]]. | ||
[[Flokkur:Þjóðhátíðarlög]] |
Núverandi breyting frá og með 26. nóvember 2005 kl. 21:32
Þjóðhátíðarlag | ||
1976 | 1977 | 1978 |
Árið 1977 voru tvö þjóðhátíðarlög valin, til að fagna því að þjóðhátíðin var aftur komin í Herjólfsdal eftir fjögurra ára dvöl á Breiðabakka eftir eldgosið.
Dagurinn fagri og dætur hans
- Þó víða um heiminn liggi leið
- ber ljúfa ágústnóttin seið.
- Hún fyllir okkur ferskri þrá,
- því fegurð dalsins Eyjaskeggjar dá.
- Okkar Herjólfsdal,
- þennan fagra fjallasal,
- þar er fjör og líf
- er fögnum við þar þjóðhátíð.
- Og sjómenn bátum sigla heim,
- það sýður þrá í mönnum þeim,
- þeir þrá með svanna að svífa í dans
- og syngja um dalinn fagra og dætur hans.
- Lag: Sigurður Óskarsson
- Ljóð: Snorri Jónsson
Herjólfsdalur 1977
- Herjólfsdalur, orðinn eins og nýr
- svo yndislega grænn sem fyrr á dögum.
- Herjólfsdalur, öll þau ævintýr
- sem áttum við í þínum sumarhögum
- þau gleymast ei, en geymast hverjum þeim
- sem gleðistundir þínar meta kunni.
- Í faðmi þér, mér finnst ég kominn heim,
- og fagna því af innsta hjartans grunni.
- Hér gleðjast allir, takast hönd í hönd
- með hýrri brá því það er gamall siður
- að láta dægurþrasið lönd og strönd,
- við leggjumst bara í grasið mjúka niður
- og njótum þess að vaka og vera til,
- í vinahópi, gista klettasalinn,
- á meðan sólin gyllir þessi þil
- og þjóðhátíðarstemmning fyllir Dalinn.
- Og blærinn hvíslar orði í eyra mér
- sem álfar snerti tregans djúpu strengi,
- við minnumst þeirra er fyrrum fóru hér
- og fögnuði með okkur nætur lengi.
- En þegar rökkvar, leikinn æskan á
- og ævintýrin nýjum perlum skarta,
- því hér er ekkert til sem mær ei má
- ef maður elskar hana af hreinu hjarta.
- Lag og ljóð: Ási í Bæ.