„Þjóðhátíðarlag (1977)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
 
Ekkert breytingarágrip
 
(3 millibreytingar ekki sýndar frá 2 notendum)
Lína 1: Lína 1:
{{Þjóðhátíðarlagið|1977|[[Vornótt í Eyjum|1976]]|[[Á þjóðhátíð|1978]]}}
Árið 1977 voru tvö þjóðhátíðarlög valin, til að fagna því að [[þjóðhátíðin]] var aftur komin í [[Herjólfsdalur|Herjólfsdal]] eftir fjögurra ára dvöl á [[Breiðibakki|Breiðabakka]] eftir [[Heimaeyjargosið|eldgosið]].
== Dagurinn fagri og dætur hans ==
:''Þó víða um heiminn liggi leið
:''Þó víða um heiminn liggi leið
:''ber ljúfa ágústnóttin seið.
:''ber ljúfa ágústnóttin seið.
Lína 4: Lína 10:
:''því fegurð dalsins Eyjaskeggjar dá.
:''því fegurð dalsins Eyjaskeggjar dá.


:''Okkar Herjólfsdal,
::''Okkar Herjólfsdal,
:''þennan fagra fjallasal,
::''þennan fagra fjallasal,
:''þar er fjör og líf
::''þar er fjör og líf
:''er fögnum við þar þjóðhátíð.
::''er fögnum við þar þjóðhátíð.


:''Og sjómenn bátum sigla heim,
:''Og sjómenn bátum sigla heim,
Lína 16: Lína 22:
::Lag: [[Sigurður Óskarsson]]
::Lag: [[Sigurður Óskarsson]]
::Ljóð: [[Snorri Jónsson]]
::Ljóð: [[Snorri Jónsson]]
== Herjólfsdalur 1977 ==
:''Herjólfsdalur, orðinn eins og nýr''
:''svo yndislega grænn sem fyrr á dögum.''
:''Herjólfsdalur, öll þau ævintýr''
:''sem áttum við í þínum sumarhögum''
:''þau gleymast ei, en geymast hverjum þeim''
:''sem gleðistundir þínar meta kunni.''
:''Í faðmi þér, mér finnst ég kominn heim,''
:''og fagna því af innsta hjartans grunni.''
:''Hér gleðjast allir, takast hönd í hönd''
:''með hýrri brá því það er gamall siður''
:''að láta dægurþrasið lönd og strönd,''
:''við leggjumst bara í grasið mjúka niður''
:''og njótum þess að vaka og vera til,''
:''í vinahópi, gista klettasalinn,''
:''á meðan sólin gyllir þessi þil''
:''og þjóðhátíðarstemmning fyllir Dalinn.''
:''Og blærinn hvíslar orði í eyra mér''
:''sem álfar snerti tregans djúpu strengi,''
:''við minnumst þeirra er fyrrum fóru hér''
:''og fögnuði með okkur nætur lengi.''
:''En þegar rökkvar, leikinn æskan á''
:''og ævintýrin nýjum perlum skarta,''
:''því hér er ekkert til sem mær ei má''
:''ef maður elskar hana af hreinu hjarta.''
::Lag og ljóð: [[Ási í Bæ]].
[[Flokkur:Þjóðhátíðarlög]]

Núverandi breyting frá og með 26. nóvember 2005 kl. 21:32

Þjóðhátíðarlag
1976 1977 1978

Árið 1977 voru tvö þjóðhátíðarlög valin, til að fagna því að þjóðhátíðin var aftur komin í Herjólfsdal eftir fjögurra ára dvöl á Breiðabakka eftir eldgosið.

Dagurinn fagri og dætur hans

Þó víða um heiminn liggi leið
ber ljúfa ágústnóttin seið.
Hún fyllir okkur ferskri þrá,
því fegurð dalsins Eyjaskeggjar dá.
Okkar Herjólfsdal,
þennan fagra fjallasal,
þar er fjör og líf
er fögnum við þar þjóðhátíð.
Og sjómenn bátum sigla heim,
það sýður þrá í mönnum þeim,
þeir þrá með svanna að svífa í dans
og syngja um dalinn fagra og dætur hans.
Lag: Sigurður Óskarsson
Ljóð: Snorri Jónsson

Herjólfsdalur 1977

Herjólfsdalur, orðinn eins og nýr
svo yndislega grænn sem fyrr á dögum.
Herjólfsdalur, öll þau ævintýr
sem áttum við í þínum sumarhögum
þau gleymast ei, en geymast hverjum þeim
sem gleðistundir þínar meta kunni.
Í faðmi þér, mér finnst ég kominn heim,
og fagna því af innsta hjartans grunni.
Hér gleðjast allir, takast hönd í hönd
með hýrri brá því það er gamall siður
að láta dægurþrasið lönd og strönd,
við leggjumst bara í grasið mjúka niður
og njótum þess að vaka og vera til,
í vinahópi, gista klettasalinn,
á meðan sólin gyllir þessi þil
og þjóðhátíðarstemmning fyllir Dalinn.
Og blærinn hvíslar orði í eyra mér
sem álfar snerti tregans djúpu strengi,
við minnumst þeirra er fyrrum fóru hér
og fögnuði með okkur nætur lengi.
En þegar rökkvar, leikinn æskan á
og ævintýrin nýjum perlum skarta,
því hér er ekkert til sem mær ei má
ef maður elskar hana af hreinu hjarta.
Lag og ljóð: Ási í Bæ.