„Ritverk Árna Árnasonar/Björn Finnbogason“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''''Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.'''''
Björn er meðalmaður að hæð, dökkhærður, fríður sý...) |
Ekkert breytingarágrip |

(1 millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum) | |||
Lína 1: | Lína 1: | ||
[[Mynd:Björn Finnbogason og kona hans.jpg|thumb|300px''Björn Finnbogason og kona hans Lára Guðjónsdóttir.]] | |||
'''''Úr fórum [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara:
Bjargveiðimannatal.'''''
| '''''Úr fórum [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara:
Bjargveiðimannatal.'''''

Björn er meðalmaður að hæð, dökkhærður, fríður sýnum sem og allir bræður hans, þrekinn í meðallagi, léttur í öllum hreyfingum, vel styrkur og liðugur maður.
| Björn er meðalmaður að hæð, dökkhærður, fríður sýnum sem og allir bræður hans, þrekinn í meðallagi, léttur í öllum hreyfingum, vel styrkur og liðugur maður.

Núverandi breyting frá og með 24. september 2013 kl. 17:12
Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.
Björn er meðalmaður að hæð, dökkhærður, fríður sýnum sem og allir bræður hans, þrekinn í meðallagi, léttur í öllum hreyfingum, vel styrkur og liðugur maður.
Hann er ákaflega skapléttur og hrókur alls fagnaðar, mjög vel látinn og vinmargur. Hann hefir verið mjög við lundaveiðar í Elliðaey og mun ávallt verða talinn með bestu veiðimönnum Eyjanna. Hin síðari ár hefir hann veitt á Heimalandinu, en hættur úteyjaferðum, enda kominn nær sjötugu. Hann er heiðursfélagi í Félagi bjargveiðimanna.
Björn var formaður á vélbátum, sækinn og mjög aflasæll, vel efnum búinn og mætur borgari. Enn stundar hann sjóinn sér til gamans. Hann er ern og frísklegur á velli, skapléttur, hýr og kátur í viðmóti.
Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit
Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Björn Finnbogason