„Ritverk Árna Árnasonar/Hetjur hafsins“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
(Ný síða: <br> <br> <br> ::::::Úr fórum Árna Árnasonar <br> :::::<big>Í dag kom hann Ingólfur Arnar</big> :::::: Í dag kom hann Ingólfur Arnar ::::::inn og ég er svo kát. ::::::Ég ...) |
m (Verndaði „Ritverk Árna Árnasonar/Hetjur hafsins“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 20. ágúst 2013 kl. 14:44
- Úr fórum Árna Árnasonar
- Í dag kom hann Ingólfur Arnar
- Í dag kom hann Ingólfur Arnar
- inn og ég er svo kát.
- Ég tigna hvern togara landsins,
- trillu, skip og bát.
- Ég fór um borð til Bjössa,
- hann blístraði hvellt og hló.
- Ó, hve ég fyrirlít alla,
- sem ekki stunda sjó.
- Blóðlausar búðarlokur,
- blankan stúndentaskríl,
- andlausa ístrubelgi
- og aula, sem keyra bíl.
- Fúla ritsjóraræfla
- og róna barinn við,
- bleikar skrifstofublækur
- og buktandi þjónalið.
- En hinir, sem koma af hafi,
- þeir heyra lífinu til,
- með sjávarins seltu í hári
- og sólskin í augnahyl.
- Þeir einir kunna að elska
- og annast hið veika kyn.
- Hve dásamlegt væri að eiga
- sér einn þeirra fyrir vin.