„Blik 1980/Hafsteinn Stefánsson (kvæði)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
 
Lína 3: Lína 3:




==Lausavísur==
<big><big><big><big><center>Lausavísur</center> </big></big></big><br>


[[Hafsteinn Stefánsson]], skipaeftirlitsmaður í Eyjum, var kunnur hagyrðingur í kaupstaðnum. Hann kvað við stýrið í meðbyr:
[[Hafsteinn Stefánsson]], skipaeftirlitsmaður í Eyjum, var kunnur hagyrðingur í kaupstaðnum. Hann kvað við stýrið í meðbyr:

Núverandi breyting frá og með 17. október 2010 kl. 15:57

Efnisyfirlit


Lausavísur


Hafsteinn Stefánsson, skipaeftirlitsmaður í Eyjum, var kunnur hagyrðingur í kaupstaðnum. Hann kvað við stýrið í meðbyr:

Beggja skauta sigling ævin er,
í áttina til grafarinnar þokast.
Djúpa ristu í hafið skútan sker,
en skurðurinn í kjölfarinu lokast.

Hafsteinn sat þingmálafund. Þá kvað hann:

Sýnist mér það sannleiksdropi tær
að sjáist ekki gróm á hegðun vorri,
ef menn bara hafa tungur tvær
og tala eftir þörfum sitt með hvorri.