„Blik 1967/Kvæði, Pétur Sigurðsson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
 
Ekkert breytingarágrip
 
(9 millibreytingar ekki sýndar frá 2 notendum)
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:Blik 1967 187.jpg|thumb|200px|Pétur Sigurðsson, ritstjóri. ]]
[[Blik 1967|Efnisyfirlit Bliks 1967]]
 
 
 
 
:::<big><big><big>KVÆÐI</big></big>
 
 
[[Mynd: 1967 b 187 A.jpg|thumb|200px|''Pétur Sigurðsson, ritstjóri.'']]
Hinn þjóðkunni erindreki og ritstjóri, Pétur Sigurðsson, hefur sent Bliki þessi ljóð. Birt með þökkum.  
Hinn þjóðkunni erindreki og ritstjóri, Pétur Sigurðsson, hefur sent Bliki þessi ljóð. Birt með þökkum.  


Lína 5: Lína 13:
:Salóme dansar - dansar þjóð.
:Salóme dansar - dansar þjóð.
:Í dansinum tryllast menn og fljóð,  
:Í dansinum tryllast menn og fljóð,  
:menn þyrstir í vin og þyrstir í blóð.  
:menn þyrstir í vín og þyrstir í blóð.  
:Það er hinn heiðni siður.  
:Það er hinn heiðni siður.  
:Villtur í nautnir heimurinn hlær.  
:Villtur í nautnir heimurinn hlær.  
Lína 13: Lína 21:


:Salóme dansar, dimm er nótt.
:Salóme dansar, dimm er nótt.
:Í dimmum klefa er sofið rétt.  
:Í dimmum klefa er sofið rótt.  
:Fangaðir guðsmenn hafa hljótt. –  
:Fangaðir guðsmenn hafa hljótt. –  
:Heimurinn vöku lengir.  
:Heimurinn vöku lengir.  
Lína 30: Lína 38:
:til dýrðar því lífi vogar.
:til dýrðar því lífi vogar.


:Salóme dansar, dansar þjóð.
:Salóme dansar, dansar þjóð,
:drekka og svalla menn og fljóð.  
:drekka og svalla menn og fljóð.  
:Vínið freyðir og blandast blóð. –  
:Vínið freyðir og blandast blóð. –  
Lína 45: Lína 53:
:Salóme dansar, dansar þjóð,  
:Salóme dansar, dansar þjóð,  
:drýpur af stalli spámannsblóð.  
:drýpur af stalli spámannsblóð.  
:Valdhöfum stjórnar vin og fljóð.  
:Valdhöfum stjórnar vín og fljóð.  
:Vita menn hvar það lendir.
:Vita menn hvar það lendir.


:Að dansandi fótum drýpur blóð.  
:Að dansandi fótum drýpur blóð.  
:Deyja spámen hjá slíkri þjóð.  
:Deyja spámenn hjá slíkri þjóð.  
:Valdhafa stjórnar vin og fljóð.  
:Valdhafa stjórnar vín og fljóð.  
:Valtur er sá í ráði.  
:Valtur er sá í ráði.  
:Einvaldsherra og æskuþrótt  
:Einvaldsherra og æskuþrótt  
Lína 71: Lína 79:
:Traustið er valt á fæti. -
:Traustið er valt á fæti. -
:Margt hefur skeð um myrka nótt,  
:Margt hefur skeð um myrka nótt,  
:mörg hefur kynslóð látið fljótt auðlegð,  
:mörg hefur kynslóð látið fljótt
:heiður og æskuþrótt, -  
:auðlegð, heiður og æskuþrótt, -  
:allt fyrir dans og kæti.
:allt fyrir dans og kæti.



Núverandi breyting frá og með 18. september 2010 kl. 20:26

Efnisyfirlit Bliks 1967



KVÆÐI


Pétur Sigurðsson, ritstjóri.

Hinn þjóðkunni erindreki og ritstjóri, Pétur Sigurðsson, hefur sent Bliki þessi ljóð. Birt með þökkum.

SALÓME DANSAR
Salóme dansar - dansar þjóð.
Í dansinum tryllast menn og fljóð,
menn þyrstir í vín og þyrstir í blóð.
Það er hinn heiðni siður.
Villtur í nautnir heimurinn hlær.
Heródes ríkir, - dansar mær,
loforð um hálfan heiminn fær, -
um höfuð spámannsins biður.
Salóme dansar, dimm er nótt.
Í dimmum klefa er sofið rótt.
Fangaðir guðsmenn hafa hljótt. –
Heimurinn vöku lengir.
Hoppar og leikur hirð og fljóð.
Heródes ríkir, dansar þjóð,
sólgið í nautnir brennur blóð. –
Böðullinn exi dengir.
Salóme dansar, dansar þjóð,
dunar í höllu, brennur glóð.
Menn þyrstir í vín, menn þyrstir í blóð,
þorstinn í sálunum logar.
Þá sverja menn girndum hávær heit,
og hætta á flest. - Það enginn veit,
hve miklu drukkin og dansmóð sveit
til dýrðar því lífi vogar.
Salóme dansar, dansar þjóð,
drekka og svalla menn og fljóð.
Vínið freyðir og blandast blóð. –
Bjart er í konungs sölum.
Einn í myrkri, með hlekk um hönd,
hjarta kvalið og særða önd,
sviftur frelsi, en ber sín bönd,
blundar á hörðum fjölum.
Sá, er hvílist og sefur rótt,
er sviftur værðum um miðja nótt.
Danslýður aldrei hefur hljótt.
Heródes böðla sendir. -
Salóme dansar, dansar þjóð,
drýpur af stalli spámannsblóð.
Valdhöfum stjórnar vín og fljóð.
Vita menn hvar það lendir.
Að dansandi fótum drýpur blóð.
Deyja spámenn hjá slíkri þjóð.
Valdhafa stjórnar vín og fljóð.
Valtur er sá í ráði.
Einvaldsherra og æskuþrótt
oft hefur fellt ein veizlunótt.
Heimsveldi stundum hrundu fljótt,
hæst þegar dansinn náði.
Salóme dansar, - drýpur blóð
drottins þjóna í böðuls slóð.
Heródes ríkir, hnignar þjóð.
Hörpur og bumbur gjalla.
Dýr er veizla og djúpt er sótt,
drekkandi æska missir þrótt,
dagur breytist í dimma nótt. –
Dansandi þjóðir falla.
Spámenn deyja, en dansar þjóð,
dvínar í brjóstum heilög glóð,
tapandi ríki tæmir sjóð. -
Traustið er valt á fæti. -
Margt hefur skeð um myrka nótt,
mörg hefur kynslóð látið fljótt
auðlegð, heiður og æskuþrótt, -
allt fyrir dans og kæti.


SJÓMANNASÖNGUR
Nú skal ýta úr vör, hefja harðsnúna för,
hvort sem hreppum vér blítt eða stórhríðarbyl,
gefa orku og blóð fyrir ættjörð og þjóð.
Það skal örva vorn dug, þetta lífshættuspil.
Ekki hrellir oss sær, það er heimur vor kær,
þar sem hlær við oss bárunnar drifhvíta traf.
Það skal auka vorn mátt, þegar aldan rís hátt.
Það er yndi hvers sjómanns hið stormvakta haf.
Sækir fullhugalið út á fengsælust mið,
klýfur freyðandi ölduskafl borðfögur súð.
Ekki stendur á byr eða' um straumana spyr,
þar sem stálbúin gnoð siglir vélorku knúð.
Hvort sem ljósgeislans staf yfir hauður og haf,
bregður hækkandi sól og hið nóttlausa vor,
eða myrk eins og gröf ógna helþrungin höf,
yfir hætturnar stærð gnæfir sjómannsins þor.