„Eros VE-79“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
(Meira um Eros)
 
(2 millibreytingar ekki sýndar frá sama notandanum)
Lína 1: Lína 1:
'''Eros''' var fysti vélbáturinn í Vestmannaeyjum. Hann var smíðaður af Páli Þorkelssyni í Reykjavík 1904. Var hann 3—3½ tonn að stærð með lítilli Möllerupsvél. Eigendur voru [[Gísli J. Johnsen]] kaupmaður, [[Ágúst Gíslason (Valhöll)|Ágúst Gíslason]] og Sigurður Sigurðsson útvegsmenn. Eros, kallaður Rosi var aldrei gerður út til fiskveiða. Síðari tilraunir með vélbáta, þá helst [[Unnur VE-80|m/b Unnur]], leiddu til þess að vélbátaútgerð blómstraði í Vestmannaeyjum.
'''Eros VE-79''' var fysti vélbáturinn í Vestmannaeyjum. Hann var smíðaður af Páli Þorkelssyni í Reykjavík 1904. Var hann 3—3½ tonn að stærð með lítilli Möllerupsvél. Eigendur voru [[Gísli J. Johnsen]] kaupmaður, [[Ágúst Gíslason (Valhöll)|Ágúst Gíslason]] og Sigurður Sigurðsson útvegsmenn. Eros, kallaður Rosi var aldrei gerður út til fiskveiða. Síðari tilraunir með vélbáta, þá helst [[Unnur VE-80|m/b Unnur]], leiddu til þess að vélbátaútgerð blómstraði í Vestmannaeyjum.
 
Í Sjómannablaðinu Víkingi birtist árið 1955 grein um þetta og segir svo um Eros í lýsingu undirritaðri 14. janúar 1932 af Bjarna Þorkelssyni skipaeftirlitsmanni og skoðunarmanni, sem fyrr er nefndur:
 
„Laust eftir nýárið 1904 kom Gísli Johnsen, þá kaupm. í Vestmannaeyjum til mín undirritaðs og leitaði samninga við mig um að byggja fyrir sig mótorbát. Tókust samningar greiðlega milli okkar um þetta. Síðan fór Gísli til útlanda og sendi hann mér eftir umtali, allt efni í bátinn frá Kaupmannahöfn, og var smíði bátsins lokið snemma í maímánuði þá um vorið. Einnig sendi Gísli vél í bátinn frá Kaupmannahöfn og var það 6 hestafla Dan-vél. Stærð bátsins mun hafa verið kringum 30 fet eða rúmlega það. Enginn annar en Gísli Johnsen samdi við mig eða hafði afskipti af smíð bátsins. Ekki varð úr því að Dan-vélin yrði sett í bátinn, heldur var sett í hann 6 hestafla tveggja cylundra Möllerupsvél, en Dan-vélin sett í annan bát, sem átti Guðmundur Diðriksson, og gekk sú vél sérstaklega vel í fjölda mörg ár. Það má segja, að bátur þessi, sem kallaður var „Eros“, eigi í raun og veru merkilega sögu, því hann mun mega telja fyrsta íslenska vélarfiskibátinn, sem smíðaður var með það fyrir augum, að setja í hann vél. Þó ber að geta þess, að nokkru áður hafði Árni Gíslason á Ísafirði látið setja vél í róðrarbát, er hann átti, en að öðru leyti eins og áður segir, er „Eros“, sem ég byggði fyrir Gísla Johnsen fyrsti vélbáturinn hér á landi, sem ætlaður er til fiskiveiða.“ Vélin í Eros reyndist illa og varð þetta til þess, að útgerð hans varð í hinu mesta basli og vandræðum, lítið sem ekkert aflaðist á bátinn. [[Þorsteinn Johnson]] í [[Jómsborg]], síðar bóksali, sem var meðeigandi og vélstjóri á fyrsta mótorbát Þorsteins í Laufási, [[Unnur VE-80|Unni VE 80]], áleit það hið mesta óhapp, að Möllerupsvél skyldi sett í Eros, sem var súðbyrtur og opinn, en yfir vélinni var hús úr járni. Yngri menn voru samt mjög hrifnir af bátnum og menn undruðust hávaðann í vélinni, sem var óskaplegur að sögn Þorsteins, enda var vélin án hljóðdeyfis. Vélin gekk þó vel til að byrja með og var Eros notaður til að draga uppskipunarbáta og skip til landsins.
 
Vélamaður eða „mótoristi“ á „Eros“ var Ágúst Gíslason í Valhöll, og þótti undravert hvað hann gat látið vélina ganga, því að þá var ekkert vélaverkstæði í Vestmannaeyjum. Stundum var [[Gísli Lárusson]], fyrrum formaður og frægur fjallamaður, en síðustu ár sín gullsmiður, fenginn til þess að gera við olíurör og sitthvað fleira, en Ágúst sýndi oft fádæma þrautseigju við vélina. Eitt sinn stöðvaðist vélin í landferð og komst Eros á seglum upp undir [[Bjarnarey]]. Þar lágu þeir alla nóttina, en klukkan 10 um morguninn tókst Ágústi, sótsvörtum eins og kolapilti, að koma vélinni í gang. Þetta er eftir frásögn Þorsteins Johnson í Jómsborg, sem var með í ferðinni.
 
[[Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1989/Vélvæðing bátaflotans]]


Árið 1908 kom til Eyja annar bátur sem nefndist einnig [[Eros VE-121|Eros VE 121]].
Árið 1908 kom til Eyja annar bátur sem nefndist einnig [[Eros VE-121|Eros VE 121]].


[[Flokkur:Skip]]
[[Flokkur:Skip]]

Núverandi breyting frá og með 25. september 2026 kl. 03:19

Eros VE-79 var fysti vélbáturinn í Vestmannaeyjum. Hann var smíðaður af Páli Þorkelssyni í Reykjavík 1904. Var hann 3—3½ tonn að stærð með lítilli Möllerupsvél. Eigendur voru Gísli J. Johnsen kaupmaður, Ágúst Gíslason og Sigurður Sigurðsson útvegsmenn. Eros, kallaður Rosi var aldrei gerður út til fiskveiða. Síðari tilraunir með vélbáta, þá helst m/b Unnur, leiddu til þess að vélbátaútgerð blómstraði í Vestmannaeyjum.

Í Sjómannablaðinu Víkingi birtist árið 1955 grein um þetta og segir svo um Eros í lýsingu undirritaðri 14. janúar 1932 af Bjarna Þorkelssyni skipaeftirlitsmanni og skoðunarmanni, sem fyrr er nefndur:

„Laust eftir nýárið 1904 kom Gísli Johnsen, þá kaupm. í Vestmannaeyjum til mín undirritaðs og leitaði samninga við mig um að byggja fyrir sig mótorbát. Tókust samningar greiðlega milli okkar um þetta. Síðan fór Gísli til útlanda og sendi hann mér eftir umtali, allt efni í bátinn frá Kaupmannahöfn, og var smíði bátsins lokið snemma í maímánuði þá um vorið. Einnig sendi Gísli vél í bátinn frá Kaupmannahöfn og var það 6 hestafla Dan-vél. Stærð bátsins mun hafa verið kringum 30 fet eða rúmlega það. Enginn annar en Gísli Johnsen samdi við mig eða hafði afskipti af smíð bátsins. Ekki varð úr því að Dan-vélin yrði sett í bátinn, heldur var sett í hann 6 hestafla tveggja cylundra Möllerupsvél, en Dan-vélin sett í annan bát, sem átti Guðmundur Diðriksson, og gekk sú vél sérstaklega vel í fjölda mörg ár. Það má segja, að bátur þessi, sem kallaður var „Eros“, eigi í raun og veru merkilega sögu, því hann mun mega telja fyrsta íslenska vélarfiskibátinn, sem smíðaður var með það fyrir augum, að setja í hann vél. Þó ber að geta þess, að nokkru áður hafði Árni Gíslason á Ísafirði látið setja vél í róðrarbát, er hann átti, en að öðru leyti eins og áður segir, er „Eros“, sem ég byggði fyrir Gísla Johnsen fyrsti vélbáturinn hér á landi, sem ætlaður er til fiskiveiða.“ Vélin í Eros reyndist illa og varð þetta til þess, að útgerð hans varð í hinu mesta basli og vandræðum, lítið sem ekkert aflaðist á bátinn. Þorsteinn Johnson í Jómsborg, síðar bóksali, sem var meðeigandi og vélstjóri á fyrsta mótorbát Þorsteins í Laufási, Unni VE 80, áleit það hið mesta óhapp, að Möllerupsvél skyldi sett í Eros, sem var súðbyrtur og opinn, en yfir vélinni var hús úr járni. Yngri menn voru samt mjög hrifnir af bátnum og menn undruðust hávaðann í vélinni, sem var óskaplegur að sögn Þorsteins, enda var vélin án hljóðdeyfis. Vélin gekk þó vel til að byrja með og var Eros notaður til að draga uppskipunarbáta og skip til landsins.

Vélamaður eða „mótoristi“ á „Eros“ var Ágúst Gíslason í Valhöll, og þótti undravert hvað hann gat látið vélina ganga, því að þá var ekkert vélaverkstæði í Vestmannaeyjum. Stundum var Gísli Lárusson, fyrrum formaður og frægur fjallamaður, en síðustu ár sín gullsmiður, fenginn til þess að gera við olíurör og sitthvað fleira, en Ágúst sýndi oft fádæma þrautseigju við vélina. Eitt sinn stöðvaðist vélin í landferð og komst Eros á seglum upp undir Bjarnarey. Þar lágu þeir alla nóttina, en klukkan 10 um morguninn tókst Ágústi, sótsvörtum eins og kolapilti, að koma vélinni í gang. Þetta er eftir frásögn Þorsteins Johnson í Jómsborg, sem var með í ferðinni.

Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1989/Vélvæðing bátaflotans

Árið 1908 kom til Eyja annar bátur sem nefndist einnig Eros VE 121.