„Guðbjörg Olsen“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Guðbjörg Olsen''' húsfreyja fæddist 7. mars 1920 í Skálholti og lést 24. ágúst 2005 í Rvk.<br> Foreldrar hennar voru Sigríður Sveinbjörnsdóttir verkakona, f. 18. mars 1895, d. 9. nóvember 1964, og Pétur Olsen, norskur maður. Guðbjörg ólst upp hjá móður sinni og móðurforeldrum á Hámundarstöðum í Vopnafirði. Hún var síðar í Sjávarborg í Hvammstangahreppi, V.-Hún., en síðast í Rvk. Þau Skúli giftu sig, eignuðust sjö börn og fó...) |
m (Verndaði „Guðbjörg Olsen“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
Núverandi breyting frá og með 2. febrúar 2026 kl. 14:34
Guðbjörg Olsen húsfreyja fæddist 7. mars 1920 í Skálholti og lést 24. ágúst 2005 í Rvk.
Foreldrar hennar voru Sigríður Sveinbjörnsdóttir verkakona, f. 18. mars 1895, d. 9. nóvember 1964, og Pétur Olsen, norskur maður.
Guðbjörg ólst upp hjá móður sinni og móðurforeldrum á Hámundarstöðum í Vopnafirði. Hún var síðar í Sjávarborg í Hvammstangahreppi, V.-Hún., en síðast í Rvk.
Þau Skúli giftu sig, eignuðust sjö börn og fósturdóttur. Þau bjuggu í Rvk
I. Maður Guðbjargar var Jón Skúli Ólafsson frá Hvammstanga, sjómaður, vélstjóri, f. 16. febrúar 1911, d. 16. september 1990. Foreldrar hans Margrét Árnadóttir, f. 12. júlí 1877, d. 16. nóvember 1965, og Ólafur Guðmundsson, f. 4. júní 1879, d. 25. febrúar 1957.
Börn þeirra:
1. Jón B. Skúlason.
2. Dóra Skúladóttir.
3. Sigríður G. Skúladóttir.
4. Unnur Skúladóttir.
5. Lára Skúladóttir.
6. Elínborg Skúladóttir.
7. Daníel Skúlason.
8. Hildur Ósk Jóhannsdóttir.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Morgunblaðið. Minning.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.