„Karl Guðvarður Guðvarðsson“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Karl Guðvarður Guðvarðsson''', sjómaður í Eyjum fæddist 5. janúar 1899 í Stórólfshvolssókn og drukknaði við Landeyjasand 3. júní 1926.<br> Foreldrar hans Guðvarður Tómasson, bóndi í Manitoba í Kanada, f. 7. mars 1875, d. 1918 eða 1919, og kona hans Einarbjörg Einarsdóttir, húsfreyja, f. 11. apríl 1876, d. 1957. Karl var fósturbarn á Efra-Hvoli í Stórólfshvolssókn 1901, var vikadrengur í Götu þar 1910.<br> Karl eignaðist barn með Höllu...) |
m (Verndaði „Karl Guðvarður Guðvarðsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 17. september 2024 kl. 13:26
Karl Guðvarður Guðvarðsson, sjómaður í Eyjum fæddist 5. janúar 1899 í Stórólfshvolssókn og drukknaði við Landeyjasand 3. júní 1926.
Foreldrar hans Guðvarður Tómasson, bóndi í Manitoba í Kanada, f. 7. mars 1875, d. 1918 eða 1919, og kona hans Einarbjörg Einarsdóttir, húsfreyja, f. 11. apríl 1876, d. 1957.
Karl var fósturbarn á Efra-Hvoli í Stórólfshvolssókn 1901, var vikadrengur í Götu þar 1910.
Karl eignaðist barn með Höllu 1923.
Hann drukknaði 1924.
I. Barnsmóðir Karls var Halla Sæmundsdóttir, síðar húsfreyja á Heiði í Ásahreppi, Rang., á Eyrarbakka og víðar, en síðast í Garðahreppi, f. 11. október 1899 í Hrauntúni í Biskupstungum, d. 8. maí 1956.
Barn þeirra:
1. Guðrún Kristjana Karlsdóttir, húsfreyja í Hfirði, síðar í Rvk, f. 24. júlí 1923, d. 3. apríl 2011. Fyrrum maður hennar Sigurgeir Gíslason. Síðari maður hennar Sveinn Stefánsson.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Holtamannabók II – Ásahreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Ásahreppur 2007.
- Manntöl.
- Prestþjónustubók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.