„Gunnar Karl Haraldsson“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: thumb|200px|''Gunnar Karl Haraldsson. '''Gunnar Karl Haraldsson''' frá Eyjum, félagsmálafræðingur fæddist þar 25. september 1994 og lést 28. febrúar 2021 á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja.<br> Foreldrar hans eru Haraldur Þorsteinn Gunnarsson rekstrarstjóri, f. 1. maí 1956, og kona hans Kristín Gunnarsdóttir, húsfreyja, bókari, f. 19. mars 1960. Bö...) |
m (Verndaði „Gunnar Karl Haraldsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 10. apríl 2024 kl. 16:04
Gunnar Karl Haraldsson frá Eyjum, félagsmálafræðingur fæddist þar 25. september 1994 og lést 28. febrúar 2021 á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja.
Foreldrar hans eru Haraldur Þorsteinn Gunnarsson rekstrarstjóri, f. 1. maí 1956, og kona hans Kristín Gunnarsdóttir, húsfreyja, bókari, f. 19. mars 1960.
Börn Kristínar og Haraldar:
1. Hrefna Haraldsdóttir, f. 28. apríl 1980. Fyrrum sambúðarmaður hennar Þorsteinn Elías Þorsteinsson. Maður hennar Ásgeir Bachmann.
2. Eyrún Haraldsdóttir, f. 26. mars 1985.
3. Gunnar Karl Haraldsson tómstunda- og félagsfræðingur, f. 25. september 1994, d. 28. febrúar 2021.
Gunnar var með foreldrum sínum í bernsku.
Hann varð stúdent í Framhaldsskólanum í Eyjum 2015, lauk B.A.-prófi í tómstunda- og félagsmálafræði í HÍ 2019. Hann hóf síðan framhaldnám í kennslufræði framhaldsskóla.
Gunnar vann ýmis störf, m.a. í félagsmiðstöðvum og í Reykjadal.
Hann var virkur þátttakandi í ýmsum félagsstörfum, m.a. í Vöku, ÍBV og í Liverpool-klúbbnum.
Gunnar lést 2021.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Morgunblaðið. Minning Gunnars Karls.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.