„Milljarðamæringar frá Texas“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
 
(5 millibreytingar ekki sýndar frá 4 notendum)
Lína 1: Lína 1:
'''''Jóhannes Esra Ingólfsson, Esra í [[Lukka|Lukku]], er einn af þessum sem kryddar tilveruna mikið hér í Vestmannaeyjum. Hann hefur fengist við margt í lífinu, svo sem að vinna sem kjötiðnaðarmaður, stíga ölduna sem sjómaður og höndla með verðbréf. Esra er hæfileikaríkur maður mjög, enda Ellireyingur, myndu sumir segja, og talar í myndrænu máli. Eftirfarandi frásögn, sem Árni Johnsen skráði, skýrir kannski málið frekar.'''''
'''''[[Jóhannes Esra Ingólfsson]], Esra í [[Lukka|Lukku]], er einn þeirra sem kryddar tilveruna í Vestmannaeyjum. Hann hefur fengist við margt í lífinu, svo sem að vinna sem kjötiðnaðarmaður, stíga ölduna sem sjómaður og höndla með verðbréf. Esra er hæfileikaríkur maður mjög, enda Ellireyingur, myndu sumir segja, og talar í myndrænu máli. Eftirfarandi frásögn, sem [[Árni Johnsen]] skráði, skýrir kannski málið frekar.'''''


===Milljarðamæringar frá Texas===
===Milljarðamæringar frá Texas===


Einu sinni komu milljarðarmæringar frá Texas í heimsókn í [[Elliðaey]]. Þeir kunnu vel við sig í þessari fögru og sérstæðu eyju og vildu kaupa hana. Þegar þeim var sagt að hún væri ekki föl vildu þeir kaupa milljón [[Lundi|lunda]] til þess að matreiða á hótelum sínum í Bandaríkjunum. Ellireyingarnir sögðust ekki geta selt þéim milljón [[Lundi|lunda]] því að þó svo að um tíu milljónir [[Lundi|lunda]] væri í Vestmannaeyjum yfir sumartímann veiddu menn aðeins brot af þeim fjölda. En Texasbúarnir höfðu ekki áhuga á neinu minna.  
Einu sinni komu milljarðamæringar frá Texas í heimsókn í [[Elliðaey]]. Þeir kunnu vel við sig í þessari fögru og sérstæðu eyju og vildu kaupa hana. Þegar þeim var sagt að hún væri ekki föl vildu þeir kaupa milljón [[Lundi|lunda]] til þess að matreiða á hótelum sínum í Bandaríkjunum. Ellireyingarnir sögðust ekki geta selt þeim milljón lunda því að þó svo að um tíu milljónir lunda væru í Vestmannaeyjum yfir sumartímann veiddu menn aðeins brot af þeim fjölda. En Texasbúarnir höfðu ekki áhuga á neinu minna.  


Esra gekk um í þungum þönkum drykklanga stund en vék sér síðan að Texasbúunum, gaf þeim fingurvink og sagði: ''„Come with me.“''
Esra gekk um í þungum þönkum drykklanga stund en vék sér síðan að Texasbúunum, gaf þeim fingurvink og sagði: ''„Come with me.“''
Lína 9: Lína 9:
Þeir fóru síðan út í brekku og sátu þar daggóða stund. Þegar Esra kom aftur í hús sagði hann félögum sínum að hann væri búinn að gera samning við Bandaríkjamennina um sölu á milljón lundum.
Þeir fóru síðan út í brekku og sátu þar daggóða stund. Þegar Esra kom aftur í hús sagði hann félögum sínum að hann væri búinn að gera samning við Bandaríkjamennina um sölu á milljón lundum.


Félagarnir gáfu lítið fyrir þessar fréttir og sögðu að hann gæti ekki staðið við slíkan samning, þetta væri tómvitleysa.
Félagarnir gáfu lítið fyrir þessar fréttir og sögðu að hann gæti ekki staðið við slíkan samning, þetta væri tóm vitleysa.


''„Strákar, látið ekki svona.“'' sagði Esra þá ''„Þið verðið að hugsa þetta í stærra samhengi: Business is business.“''
''„Strákar, látið ekki svona.“'' sagði Esra þá ''„Þið verðið að hugsa þetta í stærra samhengi: Business is business.“''


{{Heimildir|
{{Heimildir|
* Árni Johnsen. ''Lífins melódí'', Reykjavík: Vaka-Helgafell, 2004.
}}


* Lífins melódí, Árni Johnsen, 2004, Vaka-Helgafell}}
[[Flokkur:Þjóðsögur]]

Núverandi breyting frá og með 30. nóvember 2006 kl. 16:22

Jóhannes Esra Ingólfsson, Esra í Lukku, er einn þeirra sem kryddar tilveruna í Vestmannaeyjum. Hann hefur fengist við margt í lífinu, svo sem að vinna sem kjötiðnaðarmaður, stíga ölduna sem sjómaður og höndla með verðbréf. Esra er hæfileikaríkur maður mjög, enda Ellireyingur, myndu sumir segja, og talar í myndrænu máli. Eftirfarandi frásögn, sem Árni Johnsen skráði, skýrir kannski málið frekar.

Milljarðamæringar frá Texas

Einu sinni komu milljarðamæringar frá Texas í heimsókn í Elliðaey. Þeir kunnu vel við sig í þessari fögru og sérstæðu eyju og vildu kaupa hana. Þegar þeim var sagt að hún væri ekki föl vildu þeir kaupa milljón lunda til þess að matreiða á hótelum sínum í Bandaríkjunum. Ellireyingarnir sögðust ekki geta selt þeim milljón lunda því að þó svo að um tíu milljónir lunda væru í Vestmannaeyjum yfir sumartímann veiddu menn aðeins brot af þeim fjölda. En Texasbúarnir höfðu ekki áhuga á neinu minna.

Esra gekk um í þungum þönkum drykklanga stund en vék sér síðan að Texasbúunum, gaf þeim fingurvink og sagði: „Come with me.“

Þeir fóru síðan út í brekku og sátu þar daggóða stund. Þegar Esra kom aftur í hús sagði hann félögum sínum að hann væri búinn að gera samning við Bandaríkjamennina um sölu á milljón lundum.

Félagarnir gáfu lítið fyrir þessar fréttir og sögðu að hann gæti ekki staðið við slíkan samning, þetta væri tóm vitleysa.

„Strákar, látið ekki svona.“ sagði Esra þá „Þið verðið að hugsa þetta í stærra samhengi: Business is business.“


Heimildir

  • Árni Johnsen. Lífins melódí, Reykjavík: Vaka-Helgafell, 2004.