„Matthías Guðmundsson (Ketilsstöðum)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: thumb|200px|''Friðbjartur Matthías Guðmundsson. '''Friðbjartur ''Matthías'' Guðmundsson''' frá Ketilsstöðum í Mýrdal, lausamaður, vinnumaður, sjómaður fæddist þar 9. apríl 1895 og lést 25. janúar 1967 í Rvk.<br> Foreldrar hans voru Guðmundur Guðmundsson húsmaður, bóndi víða, en á Brekkum í Mýrdal 1924-1928, f. 7. september 1867 á Brekkum, d. 10. mars 1964, og kona hans Rannveig Guðmundsdóttir húsfreyja, húskon...) |
m (Verndaði „Matthías Guðmundsson (Ketilsstöðum)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 29. nóvember 2023 kl. 10:22
Friðbjartur Matthías Guðmundsson frá Ketilsstöðum í Mýrdal, lausamaður, vinnumaður, sjómaður fæddist þar 9. apríl 1895 og lést 25. janúar 1967 í Rvk.
Foreldrar hans voru Guðmundur Guðmundsson húsmaður, bóndi víða, en á Brekkum í Mýrdal 1924-1928, f. 7. september 1867 á Brekkum, d. 10. mars 1964, og kona hans Rannveig Guðmundsdóttir húsfreyja, húskona, f. 2. desember 1871 á Ketilsstöðum, d. 30. júlí 1956 á Brekkum.
Matthías var með foreldrum sínum á Ketilsstöðum í Mýrdal til 1901-1905, tökubarn á Vatnsskarðshólum þar 1905-1908, vinnudrengur á Norður-Hvoli þar 1909-1910, á Litlu-Hólum þar 1910-1915.
Hann kom til Eyja 1915 frá Litlu-Hólum, var þar lausamaður, sjómaður á Skjaldbreið við Urðaveg 36 1920, fór úr Eyjum 1923 að Norðurgarði í Mýrdal, var þar vinnumaður 1923-1928, var á Brekkum hjá bróður sínum 1938-1959, í Vík hjá föður sínum og systur 1959-1964 og var þar vinnumaður til æviloka.
Matthías lést 1967 í Reykjavík.
Hann var ókvæntur.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.