„Kristján Friðþjófsson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: thumb|200px|''Kristján Friðþjófsson. '''Kristján Friðþjófsson''' rafvélavirkjameistari, rannsóknarlögreglumaður fæddist 4. mars 1951 í Reykjavík.<br> Foreldrar hans voru Friðþjófur Ingimar Jóhannesson loftskeytamaður í Reykjavík, f. 22. maí 1913 í Hafnarfirði, d. 10. janúar 1971 og kona hans Sigríður Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 21. maí 1918 á Ísafirði, d. 8. janúar 2005. Kristján lærði rafvélavirkju...)
 
Ekkert breytingarágrip
 
(1 millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum)
Lína 19: Lína 19:
{{Æviskrár Víglundar Þórs}}
{{Æviskrár Víglundar Þórs}}
[[Flokkur: Iðnaðarmenn]]
[[Flokkur: Iðnaðarmenn]]
[[Flokkur: Lögrelumenn]]
[[Flokkur: Lögreglumenn]]
[[Flokkur: Fólk fætt á 20. öld]]
[[Flokkur: Fólk fætt á 20. öld]]

Núverandi breyting frá og með 18. maí 2023 kl. 10:44

Kristján Friðþjófsson.

Kristján Friðþjófsson rafvélavirkjameistari, rannsóknarlögreglumaður fæddist 4. mars 1951 í Reykjavík.
Foreldrar hans voru Friðþjófur Ingimar Jóhannesson loftskeytamaður í Reykjavík, f. 22. maí 1913 í Hafnarfirði, d. 10. janúar 1971 og kona hans Sigríður Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 21. maí 1918 á Ísafirði, d. 8. janúar 2005.

Kristján lærði rafvélavirkjun í Iðnskólanum í Reykjavík, lauk sveinsprófi 1973. Meistari var Magnús Hannesson. Hann var í Meistaraskóla í Eyjum 1978, lauk námi í Lögregluskóla ríkisins 1985 og í fingrafara- og lögreglufræðum í American Institute of Applied Science.
Hann vann hjá Síldarverksmiðjum ríkisins á Seyðisfirði 1973-1975, var rafvéla- og rafvirki í Eyjum 1975-1979, var rafverktaki í Bolungarvík 1979-1983 og í lögreglunni á Ísafirði 1983-1985, var síðan rannsóknarlögreglumaður hjá RLR.
Hann var formaður í Rafvirkjafélagi Vestmannaeyja árið 1977. Þau Regína giftu sig, eignuðust þrjú börn.

I. Kona Kristjáns er Regína Ólafsdóttir húsfreyja, f. 21. júní 1954 í Reykjavík.
Börn þeirra:
1. Sigríður Kristjánsdóttir, f. 17. desember 1968.
2. Róbert Kristjánsson, f. 5. nóvember 1973.
3. Bryndís Kristjánsdóttir, f. 17. desember 1979.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Rafvirkjatal. Ritstjóri: Þorsteinn Jónsson, Gunnar Guðmundsson og fleiri. Þjóðsaga hf. 1995.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.