„Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1976/ Stýrimannanámskeið í Vestmannaeyjum 1957-1958“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: Stýrimannanámskeið í Vestmannaeyjum Veturinn 1957 til 1958.
Veturinn 1957-58 var haldið stýrimannanámskeið í Vestmannaeyjum á vegum St...) |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 1: | Lína 1: | ||
Stýrimannanámskeið í Vestmannaeyjum Veturinn 1957 til 1958.
| Stýrimannanámskeið í Vestmannaeyjum Veturinn 1957 til 1958.

[[Mynd:Screen Shot 2017-06-13 at 08.43.21.png|700px|center|thumb|Fremst sitjandi frá vinstri: — 1. Jón Guðmundsson; 2. Björn Júliusson, kennari; 3. Angantýr Elíasson, prófdómari; 4. Nína Breiðfjörð Sigurðardóttir, kennari (frá Borgarfirði); 5. Páll Þorbjörnsson, forstöðumaður; 6. Friðrik Ásmundsson, kennari; 7. Hannes Haraldsson; 8. Sævald Pálsson, 9. Grétar Skaftason. — Miðröð frá vinstri: — 1. Guðjón Ólafsson; 2. Heiðar Marteinsson; 3. Grétar Þorgilsson; 4. Jóel Guðmundsson; 5. Pétur Sigurðsson; 6. Guðmann Guðmundsson; 7. Guðmundur Lárusson (úr Dalasýslu); 8. Ingólfur Matthíasson; 9. Þorleifur Guðjónsson; 10. Sigurður Oddsson; 11. Bjarnhéðinn Elíasson; 12. Steingrímur Arnar; 13. Ólafur Sigurjónsson; 14. Svanur Geirdal (frá Grímsey). — Aftasta röð frá vinstri: — 1. Kolbeinn Ólafsson; 2. Bjarni Jónasson; 3. Gisli Sigmarsson; 4. Elías Björnsson; 5. Sævar Benónýsson; 6. Sveinn Hjörleifsson; 7. Guðjón Kristinsson; 8. Ásberg Lárentínusson; 9. Sigþór Sigurðsson.]] | |||
Veturinn 1957-58 var haldið stýrimannanámskeið í Vestmannaeyjum á vegum Stýrimannaskólans í Reykjavík og eftir nýrri reglugerð þar um. Námskeið þetta stóð í u.þ.b. 4 mánuði og veitti réttindi til skipstjórnunar á 120 rúmlestra fiskiskipum og minni. Námskeið af þessu tagi höfðu legið niðri um árabil. Var ætlun stjórnvalda að afnema með öllu stýrimannafræðslu aðra en þá sem Stýrimannaskólinn í Reykjavík veitti eftir tveggja ára nám, þ.e. skipstjórnarréttindi á fiskiskipum af ótakmörkuðum stærðum. En fljótlega kom í ljós, að þessar áætlanir stjórnvalda stóðu á ótraustum grunni. Áhugi og jafnvel fjárhagsleg geta sjómanna almennt til að afla sér menntunar fór dvínandi. Undanþágufarganið var farið að tröllríða í flotanum, og fyrir kom að enginn í áhöfn fiskiskipa hafði tilskylda skólamenntun skipstjórnarmanna.
| Veturinn 1957-58 var haldið stýrimannanámskeið í Vestmannaeyjum á vegum Stýrimannaskólans í Reykjavík og eftir nýrri reglugerð þar um. Námskeið þetta stóð í u.þ.b. 4 mánuði og veitti réttindi til skipstjórnunar á 120 rúmlestra fiskiskipum og minni. Námskeið af þessu tagi höfðu legið niðri um árabil. Var ætlun stjórnvalda að afnema með öllu stýrimannafræðslu aðra en þá sem Stýrimannaskólinn í Reykjavík veitti eftir tveggja ára nám, þ.e. skipstjórnarréttindi á fiskiskipum af ótakmörkuðum stærðum. En fljótlega kom í ljós, að þessar áætlanir stjórnvalda stóðu á ótraustum grunni. Áhugi og jafnvel fjárhagsleg geta sjómanna almennt til að afla sér menntunar fór dvínandi. Undanþágufarganið var farið að tröllríða í flotanum, og fyrir kom að enginn í áhöfn fiskiskipa hafði tilskylda skólamenntun skipstjórnarmanna.

Núverandi breyting frá og með 13. júní 2017 kl. 08:54
Stýrimannanámskeið í Vestmannaeyjum Veturinn 1957 til 1958.
Veturinn 1957-58 var haldið stýrimannanámskeið í Vestmannaeyjum á vegum Stýrimannaskólans í Reykjavík og eftir nýrri reglugerð þar um. Námskeið þetta stóð í u.þ.b. 4 mánuði og veitti réttindi til skipstjórnunar á 120 rúmlestra fiskiskipum og minni. Námskeið af þessu tagi höfðu legið niðri um árabil. Var ætlun stjórnvalda að afnema með öllu stýrimannafræðslu aðra en þá sem Stýrimannaskólinn í Reykjavík veitti eftir tveggja ára nám, þ.e. skipstjórnarréttindi á fiskiskipum af ótakmörkuðum stærðum. En fljótlega kom í ljós, að þessar áætlanir stjórnvalda stóðu á ótraustum grunni. Áhugi og jafnvel fjárhagsleg geta sjómanna almennt til að afla sér menntunar fór dvínandi. Undanþágufarganið var farið að tröllríða í flotanum, og fyrir kom að enginn í áhöfn fiskiskipa hafði tilskylda skólamenntun skipstjórnarmanna.
Þá þá var það fyrir forgöngu ýmissa góðra manna, — og er þá á engan hallað þótt sér í lagi séu nefndir Jónas Sigurðsson skólastjóri og Ingólfur Þórðarson kennari við Stýrimannaskólann í Reykjavík, — að hafist var handa við endurupptöku námskeiðahalds í fiskibæjum úti um land, sem veita skyldu takmörkuð réttindi eftir þar til sniðið nám.
Stýrimannanámskeiðið í Vestmannaeyjum 1957—58 var fyrsta námskeiðið, sem haldið var utan Reykjavíkur eftir hinum nýju sjómannafræðslulögum. Forstöðumaður námskeiðsins var Páll Þorbjörnsson skipstjóri og aðalkennari ásamt honum var Friðrik Ásmundsson skipstjóri.
Aðalprófdómarar voru Ingólfur Þórðarson kennari við Stýrimannaskólann í Reykjavík og Angantýr Elíasson skipstjóri.
Námskeiðið var mjög vel sótt og þótti takast hið besta í alla staði. Enginn vafi er á því, að þetta námskeið varð frumhvatinn að stofnun Stýrimannaskólans í Vestmannaeyjum, og allri þeirri giftu, sem sú stofnun leiddi til, að því er snertir sjómannamenntun í Vestmannaeyjum.