„Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1966/ Aflaverðmætisverðlaun Sjómannadagsins“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 1: | Lína 1: | ||
Aflaverðmætisverðlaun Sjómannadagsins
| Aflaverðmætisverðlaun Sjómannadagsins

[[Mynd:Farandgripur sem gefinn var af netagerðinni.png|300px|thumb]] | |||
Fyrir Sjómannadaginn árið 1963 gáfu hjónin [[Sigríður Sigurðardóttir]] frá [[Skuld]] og [[Ingólfur Theódórsson]] netagerðarmeistari fagran verðlaunagrip fyrir mesta aflaverðmæti, sem lagt væri á land í Vestmannaeyjum næsta liðið ár á undan.
| Fyrir Sjómannadaginn árið 1963 gáfu hjónin [[Sigríður Sigurðardóttir]] frá [[Skuld]] og [[Ingólfur Theódórsson]] netagerðarmeistari fagran verðlaunagrip fyrir mesta aflaverðmæti, sem lagt væri á land í Vestmannaeyjum næsta liðið ár á undan.

Þegar betur er að gáð hefur gjafabréf þeirra hjóna aldrei birzt í [[Sjómannadagsblað Vestmannaeyja|Sjómannadagsblaðinu]], og finnst okkur að bréfið sé bezt geymt í blaðinu.
| Þegar betur er að gáð hefur gjafabréf þeirra hjóna aldrei birzt í [[Sjómannadagsblað Vestmannaeyja|Sjómannadagsblaðinu]], og finnst okkur að bréfið sé bezt geymt í blaðinu.

Núverandi breyting frá og með 28. júní 2016 kl. 09:05
Fyrir Sjómannadaginn árið 1963 gáfu hjónin Sigríður Sigurðardóttir frá Skuld og Ingólfur Theódórsson netagerðarmeistari fagran verðlaunagrip fyrir mesta aflaverðmæti, sem lagt væri á land í Vestmannaeyjum næsta liðið ár á undan.
Þegar betur er að gáð hefur gjafabréf þeirra hjóna aldrei birzt í Sjómannadagsblaðinu, og finnst okkur að bréfið sé bezt geymt í blaðinu.
Hafi þau þökk og heiður fyrir þessa höfðinglegu gjöf til sjómanna í Vestmannaeyjum.
Við undirrituð óskum fyrir hönd Netagerðarinnar Ingólfs að gefa Sjómannadagsráði Vestmannaeyja þessa jánastöng. Skal hún vera farandgripur og afhendast á Sjómannadegi Vestmannaeyja þeim skipstjóra, sem leggur á land mesta aflaverðmæti næstliðins árs, frá 1. janúar til 31. desember.
Viðkomandi bátur skal vera merktur í Vestmannaeyjum og skipstjóri hans eiga lögheimili þar á því ári sem veitt er fyrir.
Þessari fánastöng fylgir bók, sem við óskum eftir að skráð verði í skipshöfn viðkomandi báts árlega.
Ennfremur fylgja 350 viðurkenningarskjöl, sem veitast skulu hverjum einstökum skipverja. Séu um mannaskipti að ræða á viðkomandi bát þá skal skipstjóra heimilt að ákveða veitingu viðurkenningarskjala allt að þremur fleiri en samningar segja um að flestir megi vera á bátnum.
Vestmannaeyjum, 28. maí 1963.
f. h. Netagerðarinnar Ingólfs
SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR
INGÓLFUR THEÓDÓRSSON