Kristján Ólafur Hilmarsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Kristján Ólafur Hilmarsson, sjómaður fæddist 25. október 1955 í Eyjum.
Foreldrar hans voru Hilmar Sigurbjörnsson frá Stykkishólmi, sjómaður, f. 8. nóvember 1928, d. 21. maí 2006, og kona hans Jónína Margrét Ingibergsdóttir frá Sandfelli, húsfreyja, starfsmaður á Sjúkrahúsinu, fiskiðnaðarkona, f. 5. júní 1931, d. 8. desember 2014.

Börn Jónínu og Hilmars:
1. Sigurbjörn Hilmarsson stýrimaður, f. 3. janúar 1954. Kona hans Hafdís Andersen, látin. Kona hans Sóley María Hafsteinsdóttir.
2. Kristján Ólafur Hilmarsson sjómaður, f. 25. október 1955. Kona hans Heiðrún Björk Guðbrandsdóttir.
3. Katrín Guðný Hilmarsdóttir verkakona, f. 30. júlí 1960. Maður hennar Baldur Pálsson.
4. Árni Guðjón Hilmarsson sjómaður, f. 21. apríl 1962. Kona hans Sesselja Jónsdóttir.

Kristján var með foreldrum sínum í æsku.
Hann varð sjómaður.
Þau Heiðrún Björk giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu við Foldahraun 2 1986.

I. Kona Kristjáns Ólafs, (5. september 1967), Heiðrún Björk Guðbrandsdóttir, frá Unhól í Djúpárhreppi í Rang., húsfreyja, verkakona, f. 10. júní 1955. Foreldrar hennar Guðbrandur Sveinsson bóndi, rafvirki í Unhól, f. 28. maí 1920 í Borgarholti í Miklaholtshreppi, Snæf., d. 15. júní 2010, og kona hans Sigurfinna Pálmadóttir frá Unhól, húsfreyja, f. 16. ágúst 1925, d. 1. október 2019.
Börn þeirra:
1. Hilmar Kristjánsson, f. 3. júní 1974.
2. Sigurfinna Kristjánsdóttir, f. 14. nóvember 1975.
3. Jónína Margrét Kristjánsdóttir, f. 26. apríl 1983.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.