Katrín Guðný Hilmarsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Katrín Guðný Hilmarsdóttir húsfreyja fæddist 30. júlí 1960.
Foreldrar hennar voru Hilmar Sigurbjörnsson frá Stykkishólmi, sjómaður, f. 8. nóvember 1928, d. 21. maí 2006, og kona hans Jónína Margrét Ingibergsdóttir frá SandfellI, húsfreyja, starfsmaður á Sjúkrahúsinu, fiskiðnaðarkona, f. 5. júní 1931, d. 8. desember 2014.

Börn Jónínu og Hilmars:
1. Sigurbjörn Hilmarsson stýrimaður, f. 3. janúar 1954. Kona hans Hafdís Andersen, látin. Kona hans Sóley María Hafsteinsdóttir.
2. Kristján Ólafur Hilmarsson sjómaður, f. 25. október 1955. Kona hans Heiðrún Björk Guðbrandsdóttir.
3. Katrín Guðný Hilmarsdóttir verkakona, f. 30. júlí 1960. Maður hennar Baldur Pálsson.
4. Árni Guðjón Hilmarsson sjómaður, f. 21. apríl 1962. Kona hans Sesselja Jónsdóttir.

Katrín var með foreldrum sínum í æsku, við Vesturveg 23B.
Hún eignaðist barn með Hartmuth 1985.
Þau Baldur hófu búskap, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu við Vesturveg 23B.

I. Barnsfaðir Katrínar var Hartmuth Pump, f. 13. ágúst 1958 í Þýskalandi.
Barn þeirra:
1. Nína Guðrún Hartmuthsdóttir, f. 16. apríl 1985 í Eyjum.

II. Maður Katrínar Guðnýjar er Baldur Pálsson, bifreiðasmiður, f. 11. apríl 1964 í Rvk. Foreldrar hans Páll Birgir Jónsson, bílaviðgerðarmaður í Rvk, f. 4. janúar 1945, og Guðrún Baldursdóttir, f. 20. nóvember 1944.
Börn þeirra:
2. Sigríður Oddný Baldursdóttir, f. 17. mars 1989 í Eyjum.
3. Guðjón Birgir Baldursson, f. 12. júlí 1990 í Eyjum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.