Valgerður Bjarnadóttir (Strönd)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Valgerður Bjarnadóttir frá Strönd á Rangárvöllum, verkakona fæddist 5. október 1828 og lést 17. mars 1920.
Foreldrar hennar voru Bjarni Jónsson, þá bóndi á Helgusöndum u. Eyjafjöllum, áður bóndi á Strönd á Rangárvöllum, en síðar á Efri-Kvíhólma u. Eyjafjöllum, f. 21. febrúar 1799, d. 25. apríl 1877, og kona hans Þuríður Eyjólfsdóttir húsfreyja, f. 22. ágúst 1794, d. 5. júlí 1863.

Systir Valgerðar var
1. Þuríður Bjarnadóttir, vinnukona, f. 25. nóvember 1835, d. 20. ágúst 1889.
Hálfbróðir Þuríðar, samfeðra, var
2. Samúel Bjarnason mormónaprestur.

Valgerður var með foreldrum sínum á Strönd 1835, á Helgusöndum 1840, vinnukona á Strönd í V.-Landeyjum 1845, vinnukona á Efri-Hól í Holtssókn, Rang. 1850 og 1860, 1870, vinnukona á Ljótarstöðum í Landeyjum 1890, vinnukona í Björnskoti u. Eyjafjöllum 1901, var á fátækrastyrk í Mið-Mörk u. V. Eyjafjöllum 1910.
Samkvæmt Rangvellingabók var Valgerður verkakona í Eyjum.
Hún lést 1920.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Rangvellingabók. Valgeir Sigurðsson. Rangárvallahreppur, Hellu 1982.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.