Valdimar Guðnason (Haukabergi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Valdimar Guðnason, vélvirki fæddist 4. maí 1957.
Foreldrar hans voru Guðni Grímsson frá Haukabergi við Vestmannabraut 11, vélstjóri, stýrimaður, skipstjóri, f. 13. nóvember 1934, d. 28. september 2017, og kona hans Esther Valdimarsdóttir frá Varmadal, húsfreyja, f. 10. desember 1938, d. 15. desember 2024.

Börn Estherar og Guðna:
1. Valdimar Guðnason vélvirki, f. 4. maí 1957. Kona hans Þórey Einarsdóttir.
2. Grímur Guðnason rekur slökkvitækjaþjónustu, f. 29. júní 1960. Kona hans Eygló Kristinsdóttir.
3. Guðni Ingvar Guðnason vélstjóri, f. 23. október 1961. Kona hans Þórdís Úlfarsdóttir.
4. Bergur Guðnason stýrimaður, skipstjóri, f. 24. desember 1964. Kona hans Jónína Björk Hjörleifsdóttir.

Þau Þórey giftu sig, eignuðust eitt barn. Þau búa á Seltjarnarnesi.

I. Kona Valdimars er Þórey Einarsdóttir, húsfreyja, sjúkraliði, f. 1. janúar 1954. Foreldrar hennar Einar Kjartan Ólafsson, f. 11. júní 1913, d. 20. október 1992, og Þorbjörg Sigurðardóttir, f. 4. janúar 1919, d. 2. mars 1991.
Barn þeirra:
1. Valþór Valdimarsson, f. 6. maí 1977.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.