Tryggvi Már Sæmundsson
Tryggvi Már Sæmundsson útflutningsstjóri hjá Leo Fresh Fish fyrirtækinu í Eyjum, áður ritstjóri Eyjar.net, sem hafa verið sameinaðar Eyjafréttum og þar er hann ritstjóri, fæddist 26. apríl 1976.
Foreldrar hans Sigurveig Júlía Tryggvadóttir húsfreyja, verkakona, starfsmaður á elliheimili, f. 29. október 1951, og barnsfaðir hennar Sæmundur Hafsteinsson sálfræðingur, forstöðumaður, f. 22. mars 1954, d. 19. júní 2010.
Þau Arnbjörg hófu sambúð, eignuðust eitt barn og Arnbjörg átti eitt barn áður. Þau búa við Hrauntún 59.
I. Sambúðarkona Tryggva Más er Arnbjörg Harðardóttir, húsfreyja, hárgreiðslumeistari, f. 25. febrúar 1978. Foreldrar hennar Hörður Sigurðsson, f. 16. júní 1952, d. 1. apríl 2019, og Hólmfríður Arnar Stefánsdóttir, f. 1. júlí 1956.
Barn þeirra:
1. Hrafntinna Tryggvadóttir, f. 13. desember 2014.
Barn Arnbjargar:
2. Birta Lóa Styrmisdóttir, f. 2. maí 2002.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.